Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Lánveiting frá Dexia.

Málsnúmer: 0906118

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1071. fundur

Frá fjármála- og hagsýslustjóra, dags. 5. febrúar, tillaga að breyttri bókun á fundi bæjarstjórnar frá 18. desember sl. þar sem bætt er við "...eða af eiginfjárútlánaflokki Lánasjóðsins." í lok fyrstu setningar fyrri bókunar. Einnig lögð fram svohljóðandi tillaga vegna skammtímalántöku vegna afborgunar DEXIA láns:$line$"Vegna áhættu- og lánastýringar til skammtíma veitir bæjarstjórn heimild til skammtímalántöku í EUR að hámarki 20 milljónum, sem verður í síðasta lagi greidd upp í september 2013.$line$Jafnframt er Ármanni Kr. Ólafssyni, kt. 170766-5049, eða þeim sem hann vísar til, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Kópavogsbæjar að undirrita lánssamninga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari".$line$Bæjarráð vísaði tillögunni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$

Bæjarstjórn samþykkir tillögu um breytingu á bókun vegna lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga með átta atkvæðum en þrír bæjarfulltrúar sátu hjá.Bæjarstjórn samþykkir tillögu vegna skammtímalántöku í EUR að hámarki 20 milljónum, sem verður í síðasta lagi greidd upp í september 2013. Jafnframt er Ármanni Kr. Ólafssyni, kt. 170766-5049, eða þeim sem hann vísar til, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Kópavogsbæjar að undirrita lánssamninga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari. Samþykkt með sjö atkvæðum en fjórir bæjarfulltrúar sátu hjá.

02

Bæjarráð - 2673. fundur

Frá fjármála- og hagsýslustjóra, dags. 5. febrúar, tillaga að breyttri bókun á fundi bæjarstjórnar frá 18. desember sl. þar sem bætt er við "...eða af eiginfjárútlánaflokki Lánasjóðsins." í lok fyrstu setningar fyrri bókunar. Einnig lögð fram svohljóðandi tillaga vegna skammtímalántöku vegna afborgunar DEXIA láns:$line$"Vegna áhættu- og lánastýringar til skammtíma veitir bæjarstjórn heimild til skammtímalántöku í EUR að hámarki 20 milljónum, sem verður í síðasta lagi greidd upp í september 2013.$line$Jafnframt er Ármanni Kr. Ólafssyni, kt. 170766-5049, eða þeim sem hann vísar til, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Kópavogsbæjar að undirrita lánssamninga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari".$line$

Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.Fjármála- og hagsýslustjóri sat fundinn undir þessum lið.

03

Bæjarstjórn - 1068. fundur

Frá fjármála- og hagsýslustjóra, dags. 12. desember, tillaga um endurfjármögnun, lögð fram í bæjarráði 13/12 og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar:$line$"Bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð allt að kr. 5.000.000.000,- í kauphallarflokkum Lánasjóðs sveitarfélaga, LSS 2024 og/eða LSS2034. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. $line$Jafnframt er Ármanni Kr. Ólafssyni, kt. 170766-5049, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Kópavogsbæjar að undirrita lánssamninga við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari."$line$

Til máls tóku Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, og Ómar Stefánsson, sem lagði til að tillögunni verði vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs. Þá tóku til máls Hjálmar Hjálmarsson, Gunnar Ingi Birgisson, Ómar Stefánsson, Hjálmar Hjálmarsson og Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri. Hlé var gert á fundi kl. 21:37. Fundi var fram haldið kl. 21:39. Forseti bar upp tillögu Ómars Stefánssonar um að vísa framlagðri tillögu til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs. Tillagan var felld með fímm atkvæðum en tveir greiddu atkvæði með henni. Fjórir bæjarfulltrúar sátu hjá.Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélag ohf. að fjárhæð allt að kr. 5.000.000.000,- í kauphallarflokkum Lánasjóðs sveitarfélaga, LSS 2024 og /eða LSS2034 með tíu atkvæðum en einn bæjarfulltrúi sat hjá.

04

Bæjarráð - 2666. fundur

Frá fjármála- og hagsýslustjóra, dags. 12. desember, tillaga um endurfjármögnun.

<P style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt" class=MsoNormal>Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.</P>