Geymsluhúsnæði fyrir menningarstofnanir.
Málsnúmer: 1002181
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2555. fundur
Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 22/6, umsögn sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum 20/5, varðandi geymsluhúsnæði fyrir menningarstofnanir á Borgarholtinu í bílageymslu Safnaðarheimilis Kársnessafnaðar að Hábraut 1. Lagt er til að fallist verði á afnot af bílageymslunni.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

02
Bæjarráð - 2550. fundur
Frá sviðsstjóra tómstunda- og menningarsviðs, dags. 17/5, óskað eftir heimild bæjarráðs til að menningarstofnanir á Borgarholtinu fái afnot af bílageymslu Safnaðarheimilis Kársnessafnaðar að Hábraut 1, sem geymsluhúsnæði.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.

03
Lista- og menningarráð - 351. fundur

Guðrún Pálsdóttir sviðstjóri Tómstunda- og menningarsviðs upplýsti ráðið um fyrirhugaðar breytingar á rými undir safnaðarheimili Kópavogskirkju, til þess að rýmið geti nýst sem geymslurými fyrir söfn bæjarins. Ráðið lýsti yfir óskum um frekari upplýsingar og kostnaðaráætlun.