Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2555. fundur

í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi

Mætt til fundar

Ritari

  • Páll Magnússon

Dagskrá fundar

01

Kjör áheyrnarfulltrúa í bæjarráð

Frá bæjarlögmanni, umsögn dags. 21/6, sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum 16/6, varðandi kjör áheyrnarfulltrúa í bæjarráð, ásamt kostnaðaráætlun vegna setu áheyrnarfulltrúa. Enginn vafi er talinn leika á lögmæti þess að Rannveig H. Ásgeirsdóttir taki sæti í bæjarráði sem áheyrnarfulltrúi með málfrelsi og tillögurétti.

<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

02

Skipan áheyrnarfulltrúa í einstökum fimm manna nefndum og ráðum

Frá bæjarlögmanni, umsögn dags. 22/6, sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum 16/6 um skipan áheyrnarfulltrúa í einstökum fimm manna nefndum og ráðum. Talið er ljóst að bæjarstjórn hefur heimild til að samþykkja skipan áheyrnarfulltrúa í nefndum og ráðum.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð samþykkir skipan áheyrnarfulltrúa í eftirtaldar nefndir með þremur atkvæðum gegn tveimur:</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Kosning áheyrnarfulltrúa í skipulagsnefnd:</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Una María Óskarsdóttir</DIV&gt;<DIV&gt;Helgi Helgason</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Kosning áheyrnarfulltrúa í ÍTK:</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Alexander Arnarson</DIV&gt;<DIV&gt;Guðmundur Freyr Sveinsson</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Kosning áheyrnarfulltrúa í skólanefnd:</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Aldís Aðalbjarnardóttir</DIV&gt;<DIV&gt;Sveinn Sigurðsson</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Kosning áheyrnarfulltrúa í lista- og menningarráð:</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Guðný Dóra Gestsdóttir</DIV&gt;<DIV&gt;Andrés Pétursson</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Kosning áheyrnarfulltrúa í atvinnu- og upplýsinganefnd:</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Katrín Guðjónsdóttir</DIV&gt;<DIV&gt;Eiríkur Ólafsson</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Kosning áheyrnarfulltrúa í leikskólanefnd:</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Sunna Guðmundsdóttir</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:</DIV&gt;<DIV&gt;<EM&gt;"Kostnaður vegna setu áheyrnarfulltrúa í bæjarráði og nefndum bæjarins verður líklega ekki lægri en sem nemur því sem aldraðir þurfa að greiða í sund. Þetta dæmi sýnir svart á hvítu hrossakaup hins nýja fjórflokks í Kópavogi.</EM&gt;</DIV&gt;<DIV&gt;<EM&gt;Gunnar Ingi Birgisson"</EM&gt;</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Ármann Kr. Ólafsson óskar eftir upplýsingum um áætlaðan heildarkostnað við skipan áheyrnarfulltrúa í nefndir og bæjarráð.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

03

Stjórnsýslukæra vegna ráðningar í starf húsvarðar við Lindaskóla.

Frá bæjarlögmanni, lagt fram erindi frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, dags. 11/6, ásamt umsögn varðandi stjórnsýslumál nr. 82/2009 vegna ráðningar húsvarðar í Lindaskóla.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til starfsmannastjóra til úrvinnslu.</DIV&gt;</DIV&gt;

04

Austurkór 35-41

Frá fjármála- og hagsýslustjóra og skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 22/6, umsögn sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum 6/5, varðandi beiðni um lækkun á gjaldskrá yfirtöku- og gatnagerðargjalda ásamt breytingu á flokkun í gjaldflokki vegna Austurkórs 35 - 41.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.</DIV&gt;</DIV&gt;

05

Smiðjuvegur Efstaland. Kaup Kópavogsbæjar á húseigninni

Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 15/6, mál sem frestað var á fundi bæjarráðs 16/6, umsögn sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum 3/6, varðandi lóðina Efstaland. Lagt er til að bærinn bjóðist til að kaupa húsið á brunabótamatsverði, leysi til sín lóðina að Efstalandi án frekara endurgjalds og úthluti lóðarhafa nýrri lóð að vali bæjarins í samræmi við fyrrnefndan samning.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins.</DIV&gt;</DIV&gt;

06

Þrúðsalir 7. Tillaga um að fjarlægja sökkul

Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, umsögn dags. 22/6, varðandi sökkul á lóðinni að Þrúðsölum 7. Lagt er til að sökkullinn verði fjarlægður af lóðinni.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð samþykkir tillöguna.</DIV&gt;</DIV&gt;

07

Staða framkvæmda við Löngubrekku 2.

Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 22/6, varðandi stöðu framkvæmda við Löngubrekku 2.$line$Búið er að loka húsinu og til stendur að bærinn fjarlægi á næstu vikum ónýta girðingu á lóðarmörkum og slái gras á lóðinni sem er í órækt. Ekki eru fyrirhugaðar frekari aðgerðir þar á næstunni.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð óskar eftir umsögn frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs varðandi eignarhald á eigninni.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

08

Geymsluhúsnæði fyrir menningarstofnanir.

Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 22/6, umsögn sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum 20/5, varðandi geymsluhúsnæði fyrir menningarstofnanir á Borgarholtinu í bílageymslu Safnaðarheimilis Kársnessafnaðar að Hábraut 1. Lagt er til að fallist verði á afnot af bílageymslunni.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð samþykkir tillöguna.</DIV&gt;</DIV&gt;

09

Ósk um betra aðgengi úr Austurkór niður í Salahverfi/Salaskóla.

Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 22/6, umsögn sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum 25/3, varðandi aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda úr Austurkór niður í Salahverfi/Salaskóla. Unnið er að gerð stíga úr Austurkór yfir í Salahverfi og að Salaskóla. Möl verður borin í stígana en þeir verða ekki malbikaðir að svo stöddu. Stígarnir verða tilbúnir áður en skólahald hefst í haust.

<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

10

Verktakasamningar vegna stoðþjónustu leikskóla

Samningarnir voru lagðir fyrir leikskólanefnd þann 8. júní sl.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Sérkennslufulltrúi leikskóla mætti á fundinn og gerði grein fyrir verktakasamningum vegna stoðþjónustu leikskóla.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð staðfestir verktakasamningana en felur leikskólanefnd að skoða kosti þess að ráða sérfræðinga til bæjarins í stað þess að kaupa þjónustuna að. Þá samþykkir bæjarráð að þjónustukaupin verði boðin út fyrir næsta skólaár, verði niðurstaðan sú að kaupa þjónustu áfram að.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

11

Fjárveitingar til Tónlistarskólans í Kópavogi.

Frá staðgengli sviðsstjóra tómstunda- og menningarsviðs, mál sem frestað var á fundi bæjarráðs 16/6, umsögn um fjárveitingar til tónlistarskóla í Kópavogi. Lagt er til að auka fjárveitingar til Tónlistarskóla Kópavogs um 7 milljónir.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð samþykkir tillögu um aukafjárveitingu og vísar henni til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.</DIV&gt;</DIV&gt;

12

Framlög til nemenda í söng- og tónlistarskólum utan Kópavogs. Vor 2010.

Frá staðgengli sviðsstjóra tómstunda- og menningarsviðs, mál sem frestað var á fundi bæjarráðs 16/6, óskað er eftir að bæjarráð veiti heimild til aukafjárveitingar að fjárhæð kr. 11 milljónir og henni verði vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð samþykkir tillögu um aukafjárveitingu og vísar henni til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð felur sviðsstjóra tómstunda- og menningarsviðs að ræða við skólastjóra tónlistarskóla í Kópavogi um reglur um inntöku nýrra nemenda. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að taka málið upp á næsta fundi stjórnar SSH.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

13

Fyrirspurn varðandi leikskóla í Þingahverfi

Kl. 13.56 vék Rannveig Ásgeirsdóttir af fundi.

Frá Kolbrúnu Hrafnkelsdóttur, tölvupóstur, dags. 15/6, fyrirspurn um hvort byggja eigi nýjan leikskóla í Þingahverfi.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Meirihluti bæjarráðs bendir á að í málefnasamningi meirihlutaflokkanna kemur fram að gert er ráð fyrir byggingu nýs leikskóla í Þingum.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:</DIV&gt;<DIV&gt;<EM&gt;"Eðlilegt að nýr leikskóli rísi í Austurkór á Rjúpnahæð. Þá er rétt að benda á að það eru ungbarnadeildir í Baugi og Aðalþingi.</EM&gt;</DIV&gt;<DIV&gt;<EM&gt;Gunnar Ingi Birgisson"</EM&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

14

Fleiri íbúðir til leigu fyrir eldri borgara

Frá Sunnuhlíð, dags. 21/6, varðandi samþykkt stjórnar Sunnuhlíðar um að gera kaupsamninga við húsnæðisnefnd Kópavogs, komi til kaupa bæjarins á íbúðum á Kópavogsbraut 1a og/eða Kópavogsbraut 1b.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálastjóra til umsagnar.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

15

Landsendi 7-9. Beiðni um flutning hesthúss frá Þokkaholti 4

Frá Sveini A. Reynissyni, dags. 10/6, óskað heimildar bæjarráðs um flutning hesthússins Þokkaholt 4 að Landsenda 7 - 9, en annar hluti hússins við Þokkaholt 4 er á forræði Kópavogsbæjar.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs til umsagnar.</DIV&gt;</DIV&gt;

16

Vogatunga 97, bótakrafa á hendur Kópavogsbæ

Frá KE Lögmannsstofu, dags. 16/6, f.h. eigenda að Vogatungu 97, vegna tjóns sem varð við endurnýjun vatnsleiðsla inn í húsið.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.</DIV&gt;</DIV&gt;

17

Ungmenni í atvinnuleit 17 og 18 ára, velferðarvaktin

Frá velferðarvaktinni, dags. 8/6, beiðni til sveitarfélaga um að leita allra leiða til að tryggja ungmennum 17 og 18 ára vinnu í sumar og láta þau sem ekki fengu vinnu í fyrra sumar fá forgang að störfum.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til skrifstofustjóra almennrar skrifstofu til umsagnar. Þá óskar bæjarráð eftir upplýsingum um fjölda atvinnulausra á aldrinum 16 - 18 ára.</DIV&gt;</DIV&gt;

18

Ráðning í stöðu leikskólastjóra í Fífusölum og sérkennslufulltrúa á skólaskrifstofu

Frá Kennarasambandi Íslands, dags. 15/6, varðandi ráðningu í stöðu leikskólastjóra í Fífusölum og sérkennslufulltrúa á skólaskrifstofu.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til starfsmannastjóra til úrvinnslu og ítrekar að öll störf séu auglýst og farið að settum verkferlum við ráðningar.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

19

Ósk um framlag til rekstrar og verkefna Mannréttindaskrifstofu Íslands

Frá Mannréttindaskrifstofu Íslands, dags. 15/6, óskað eftir framlagi til rekstrar og verkefna skrifstofunnar.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til jafnréttisnefndar til afgreiðslu.</DIV&gt;</DIV&gt;

20

Vatnsendablettur 45 (nú Elliðahvammsvegur 4). Stefna - bætur vegna eignarnáms á hluta af lóðinni Vbl. 45

Frá Halldóri Halldórssyni, dags. 26/5, greinargerð vegna nýs lóðarleigusamnings fyrir Vatnsendablett 45.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.</DIV&gt;</DIV&gt;

21

Gögn vegna útboða verka á íþróttavöllum

Frá Túnþökuvinnslunni Grasvöllum ehf., dags. 12/6, óskað eftir gögnum sem varða útboð/tilboð í torf á íþróttavöllinn í Vallakór.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til deildarstjóra framkvæmdadeildar til afgreiðslu.</DIV&gt;</DIV&gt;

22

Dalaþing 32. Umsókn um lóð

Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 22/6, lögð fram lóðarumsókn Lilju Marteinsdóttur og Ragnars Ólafssonar, sem sækja um lóðina Dalaþing 32.$line$Lagt er til að ofangreindum umsækjendum verði úthlutað lóðinni að Dalaþingi 32.

<DIV&gt;Bæjarráð samþykkir að úthluta Lilju Marteinsdóttur og Ragnari Ólafssyni lóðina Dalaþing 32.</DIV&gt;

23

Vallakór 2, lóðarskil.

Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 22/6, varðandi skil á lóðinni Vallakór 2. Lagt er til að fjármálastjóra- og skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs verði falið að leita samninga um skil og endurgreiðslu ofangreindra lóða, með því skilyrði að veðhafar fjármagni yfirtöku lóðanna á ásættanlegum kjörum. Að viðræðum loknum verði samningar lagðir fyrir bæjarráð til samþykkis eða synjunar.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð felur fjármála- og hagsýslustjóra og skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs að ræða við lóðarhafa um skil og endurgreiðslu lóðarinnar á grundvelli vinnureglna Kópavogsbæjar um lóðaskil.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

24

Tónahvarf 7, lóðarskil.

Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknissviðs, dags. 22/6, varðandi skil á lóðinni Tónahvarf 7. Lagt er til að fjármálastjóra- og skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs verði falið að leita samninga um skil og endurgreiðslu ofangreindra lóða, með því skilyrði að veðhafar fjármagni yfirtöku lóðanna á ásættanlegum kjörum. Að viðræðum loknum verði samningar lagðir fyrir bæjarráð til samþykkis eða synjunar.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð felur fjármála- og hagsýslustjóra og skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs að ræða við lóðarhafa um skil og endurgreiðslu lóðarinnar á grundvelli vinnureglna Kópavogsbæjar um lóðaskil.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

25

Urðarhvarf 12. Lóðarskil.

Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknissviðs, dags. 22/6, varðandi skil á lóðinni Urðahvarf 12. Lagt er til að fjármálastjóra- og skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs verði falið að leita samninga um skil og endurgreiðslu ofangreindra lóða, með því skilyrði að veðhafar fjármagni yfirtöku lóðanna á ásættanlegum kjörum. Að viðræðum loknum verði samningar lagðir fyrir bæjarráð til samþykkis eða synjunar.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð felur fjármála- og hagsýslustjóra og skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs að ræða við lóðarhafa um skil og endurgreiðslu lóðarinnar á grundvelli vinnureglna Kópavogsbæjar um lóðaskil.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

26

Útsvar vegna ársins 2010

Frá skattstofunni í Hafnarfieði, dags. 21/6, ásamt umsögn fjármála- og hagsýslustjóra, dags. 22/6, varðandi útsvarsprósentu í Kópavogi árið 2010.

<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

27

Fimm mánaða uppgjör.

Gunnar Ingi Birgisson óskaði eftir því að fimm mánaða rekstraruppgjör verði lagt fram á næsta fundi bæjarráðs þann 8. júlí nk.

<DIV&gt;</DIV&gt;

28

Staða sviðsstjóra tómstunda- og menningarsviðs.

Gunnar Ingi Birgisson spurðist fyrir um hvenær staða sviðsstjóra tómstunda- og menningarsviðs verði auglýst laus til umsóknar.

<DIV&gt;Formaður greindi frá því að staðan verði auglýst í haust.</DIV&gt;

29

Æfingatöflur íþróttahúsa.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð beinir því til íþróttafulltrúa að við gerð æfingataflna í íþróttahúsum bæjarins næsta vetur verði tekið mið af leiðarkerfi og tímatöflu Strætó bs. </DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

30

Starfskjör bæjarstjóra 2010

Tekinn fyrir ráðningarsamningur við Guðrúnu Pálsdóttur, bæjarstjóra, sem vísað var til afgreiðslu bæjarráðs frá bæjarstjórn þann 22. júní sl.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð samþykkir ráðningarsamning við bæjarstjóra með þremur samhljóða atkvæðum&nbsp;með þeirri breytingu að uppsagnarfrestur verði innan 12 mánaða biðlauna. Tveir fulltrúar sátu hjá.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:</DIV&gt;<DIV&gt;<EM&gt;"Fyrir rétt um ári fluttu fulltrúar Samfylkingar og VG&nbsp;stefnumarkandi tillögu að eigin sögn sem sneri að einstökum nefndum og ráðum sem bæjarstjóri situr sérstaklega í í krafti embættis síns og ætti ekki að greiða sérstaklega fyrir. Var þá um að ræða starf hafnarstjóra og setu í hafnarstjórn. Í núverandi ráðningarsamningi er ekki að finna orð um þessa stefnumarkandi tillögu. Ljóst er að laun bæjarstjóra eru að hækka töluvert.</EM&gt;</DIV&gt;<DIV&gt;<EM&gt;Ómar Stefánsson"</EM&gt;</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Gunnar Ingi Birgisson óskar eftir upplýsingum um laun sveitarstjóra í nágrannasveitarfélögum Kópavogs.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, vék af fundi undir þessum lið.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;