Sameining Digranesskóla og Hjallaskóla
Málsnúmer: 1003035
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2550. fundur
Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 19/5, vegna sameiningar Digranesskóla og Hjallaskóla. Lagt er til að framkvæmda- og tæknisviði verði falið að hefja undirbúning að framkvæmdum við Digranes- og Hjallaskóla, í samræmi við meðfylgjandi framkvæmdaáætlun, sem rúmist innan fjárveitingar.
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs.
02
Ferlinefnd - 134. fundur
Rætt almennt um auknar áherslur varðandi bætt aðgengi fyrir alla í grunnskólum bæjarins. Vegna fyrirhugaðrar sameiningar Digranesskóla og Hjallaskóla leggur ferlinefnd áherslu á að aðgengismál verði sérstaklega skoðuð við hönnun.
03
Skólanefnd - 8. fundur
Formaður skólanefndar gerði grein fyrir vinnu við sameiningu skólanna.
Málið rætt.
Fulltrúar Samfylkingar og fulltrúi Vinstri Grænna lögðu fram eftirfarandi bókun:
""Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri Grænna í skólanefnd fagna að almenn sátt virðist vera að nást um sameiningu Hjalla- og Digranesskóla. Það hefði þó verið eðlilegra að málið fengi eðlilega afgreiðslu innan stjórnkerfis bæjarins þannig að formleg og vel ígrunduð tillaga kæmi frá skólanefnd til bæjarráðs um málið. Þess í stað var málið afgreitt í flýti af bæjarráði og niðurstaða tilkynnt skólanefnd í dag. Þessi framgangsmáti sýnir virðingarleysi meirihlutans gagnvart faglegri umfjöllun í skólanefnd og er það miður. Allur undirbúningur og upplýsingagjöf vegna málsins til skólanefndar á liðnum vikum hefur verið tilviljunarkennd og ekki til eftirbreytni við umfjöllun viðkvæmra mála eins og sameining skóla er.""
Hlé var gert á fundi kl. 18:08.
Fundur settur aftur kl. 18:15.
Að loknu fundarhléi lagði meirihluti skólanefndar fram eftirfarandi bókun:
""Meirihluti skólanefndar tekur ekki undir bókun minnihlutans. Sameining Digranes- og Hjallaskóla hefur verið til umfjöllunar á flestum fundum skólanefndar síðan sameining skólanna kom til tals. Framkvæmdahópur var skipaður af bæjarráði og hefur formaður skólanefndar átt sæti í þeim hópi og komið á framfæri sjónarmiðum sem upp hafa komið á fundum skólanefndar. Ljóst var frá upphafi að ákvörðun um sameininguna var alfarið í höndum bæjarráðs.""
04
Bæjarráð - 2545. fundur
Lögð fram tillaga framkvæmdahóps frá 7. apríl sl.:$line$Á grundvelli faglegrar úttektar Ellerts Borgars Þorvaldssonar sem lögð var fyrir fund framkvæmdahóps þann 7. apríl, áréttar framkvæmdahópur fyrri tillögu sína að farið verði í sameiningu Digranes- og Hjallaskóla í nýjan skóla sem taki til starfa haustið 2010.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
05
Skólanefnd - 7. fundur
Ellert Borgar Þorvaldsson gerði grein fyrir undirbúningsvinnu sinni vegna sameiningar Digranes- og Hjallaskóla og lagði fram drög að fréttabréfi sem fer til allra foreldra. Sigrún Bjarnadóttir, skólastjóri Hjallaskóla og Magnea Einarsdóttir, skólastjóri Digranesskóla, gerðu einnig grein fyrir stöðu mála í sínum skólum. Árni Þ. Hilmarsson fór yfir helstu þætti varðandi hagræðingu í rekstri skólanna. Árni lagði einnig fram upplýsingar frá framkvæmdasviði varðandi kostnað við endurbætur á húsnæði Digranesskóla.
Málið rætt.
Hlé var gert á fundi kl. 18:45.
Fundur settur aftur kl. 19:00.
Fulltrúar Samfylkingar lögðu fram eftirfarandi bókun:
""Almennt erum við fulltrúar Samfylkingarinnar sammála því að skoða rækilega kosti þess að sameina Digranes- og Hjallaskóla. Hins vegar undrumst við upplýsingaleysi um kosti og galla sameiningar, kostnað og framtíðarskipulag í innra og ytra starfi skólans til framtíðar. Öll upplýsingagjöf til skólanefndar í sameiningarferlinu hefur verið í skötulíki og því verið erfitt að átta sig á meginatriðum málsins og umræðan hefur því verið ómarkviss. Einnig söknum við þess að aðrir möguleikar á skipulagi skólahverfa hafi verið skoðaðir rækilega"".
06
Bæjarráð - 2544. fundur
07
Bæjarráð - 2543. fundur
Frá sviðsstjóra fræðslusviðs, dags. 23/3, greinargerð framkvæmdahóps vegna undirbúningsvinnu væntanlegrar sameiningar Digranes- og Hjallaskóla.
Bæjarráð samþykkir að áfram skuli stefnt að sameiningu Digranes- og Hjallaskóla í einn skóla undir stjórn tveggja skólastjóra. Næsta skref í þeim undirbúningi er gerð faglegrar og rekstrarlegrar úttektar á sameiningu skólanna. Niðurstaða liggi fyrir svo fljótt sem auðið er og verði hún lögð fyrir bæjarráð. Framkvæmdahópi verði falin ofangreind vinna.
08
Skólanefnd - 6. fundur
Formaður skólanefndar fór yfir gang mála varðandi umræður um sameiningu skólanna. Árni Þór fór einnig yfir málið.
Málið rætt.
09
Bæjarráð - 2541. fundur
Frá bæjarstjóra, tillaga um sameiningu Hjallaskóla og Digranesskóla, sem vísað var frá bæjarstjórn 9/3 til bæjarráðs til frekari úrvinnslu.
Bæjarráð felur fræðsluskrifstofu, í samvinnu við skólastjórnendur, að halda áfram undirbúningi fyrir væntanlega sameiningu Digranes- og Hjallaskóla. Bæjarráð væntir þess að fá greinargerð um undirbúningsvinnuna á fundi bæjarráðs 25. mars næstkomandi.
10
Bæjarstjórn - 1012. fundur
Forseti bar undir fundinn lið 13, tillögu um sameiningu Hjallaskóla og Digranesskóla, sem vísað var til afgreiðslu bæjarstjórnar á fundi bæjarráðs 4/3.
Forseti bar undir fundinn tillögu bæjarstjóra um að tillögu um sameiningu skóla verði vísað til bæjarráðs til frekari úrvinnslu. Bæjarstjórn samþykkti tillöguna með tíu samhljóða atkvæðum en einn bæjarfulltrúi sat hjá.
11
Bæjarráð - 2540. fundur
Frá sviðsstjóra fræðslusviðs, dags. 3/3, tillaga um að sameina Hjallaskóla og Digranesskóla næsta haust.
Til fundarins mættu sviðsstjóri fræðslusviðs, skólastjóri Hjallaskóla og skólastjóri Digranesskóla.
Hlé var gert á fundi kl. 16.26. Fundi var fram haldið kl. 16.33
Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.