Skólanefnd - 8. fundur
í Kársnesskóla
Mætt til fundar
Ritari
- Hannes Sveinbjörnsson
Dagskrá fundar

Guðrún Pétursdóttir, skólastjóri, sagði frá því starfi sem fram fer í gamla Kársnesskólanum. Guðrún fjallaði sérstaklega um útikennslu í yngstu deildum skólans og sagði einnig frá ýmsum öðrum áhugaverðum verkefnum sem unnin eru við skólann.

Lagt fram bréf, dags. 22.04.2010 frá skólastjóra Kársnesskóla vegna fjárhagsstöðu skólans skólaárið 2009.

Skólanefnd óskar eftir greinargerð og skýringum á efni bréfsins frá fræðsluskrifstofu á næsta fundi nefndarinnar.

Formaður skólanefndar gerði grein fyrir vinnu við sameiningu skólanna.

Málið rætt.

Fulltrúar Samfylkingar og fulltrúi Vinstri Grænna lögðu fram eftirfarandi bókun:

""Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri Grænna í skólanefnd fagna að almenn sátt virðist vera að nást um sameiningu Hjalla- og Digranesskóla. Það hefði þó verið eðlilegra að málið fengi eðlilega afgreiðslu innan stjórnkerfis bæjarins þannig að formleg og vel ígrunduð tillaga kæmi frá skólanefnd til bæjarráðs um málið. Þess í stað var málið afgreitt í flýti af bæjarráði og niðurstaða tilkynnt skólanefnd í dag. Þessi framgangsmáti sýnir virðingarleysi meirihlutans gagnvart faglegri umfjöllun í skólanefnd og er það miður. Allur undirbúningur og upplýsingagjöf vegna málsins til skólanefndar á liðnum vikum hefur verið tilviljunarkennd og ekki til eftirbreytni við umfjöllun viðkvæmra mála eins og sameining skóla er.""

Hlé var gert á fundi kl. 18:08.

Fundur settur aftur kl. 18:15.

Að loknu fundarhléi lagði meirihluti skólanefndar fram eftirfarandi bókun:

""Meirihluti skólanefndar tekur ekki undir bókun minnihlutans. Sameining Digranes- og Hjallaskóla hefur verið til umfjöllunar á flestum fundum skólanefndar síðan sameining skólanna kom til tals. Framkvæmdahópur var skipaður af bæjarráði og hefur formaður skólanefndar átt sæti í þeim hópi og komið á framfæri sjónarmiðum sem upp hafa komið á fundum skólanefndar. Ljóst var frá upphafi að ákvörðun um sameininguna var alfarið í höndum bæjarráðs.""

Lagt fram erindi frá skólastjóra Smáraskóla, dags. 21. apríl 2010, með ósk um breytingar á skóladagatali fyrir skólaárið 2009-2010.

Skólanefnd samþykkir breytinguna.

Lagt fram erindi frá skólastjórum, dags. 20. apríl 2010, með ósk um endurskoðun á ákvörðun bæjaryfirvalda um að fækka stöðugildum deildarstjóra við grunnskólana.

Málið rætt.

Skólanefnd samþykkti eftirfarandi bókun:

""Í sparnaðartillögum grunnskóla vegna fjárhagsáætlunar 2010 sem unnar voru í samráði við skólastjóra og samþykktar í bæjarráði er gert ráð fyrir ""að stjórnunarkvóti verði minnkaður um ca. 1 stöðugildi deildarstjóra pr. skóla að meðaltali"". Í áætlun er gert ráð fyrir kr. 15 milljóna hagræðingu í þessum þætti. Með þessari sparnaðaraðgerð, ásamt ýmsum öðrum, tókst að komast hjá enn meiri niðurskurði á kennslutímamagni en raun varð. Skólanefnd lítur svo á að það sé ekki á hennar valdi að breyta þessari ákvörðun bæjarráðs vegna fjárhagsársins 2010. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2011 verður farið vandlega yfir alla rekstrarþætti skólanna með endurskoðun í huga.

Lagt fram skóladagatal Vatnsendaskóla fyrir 2010-2011.

Skólanefnd vísar erindinu til skoðunar á fræðsluskrifstofu.

Lagt fram yfirlit frá fræðsluskrifstofu um fjölda nemenda utan síns skólahverfis.

Lagt fram bréf. dags 22. febrúar 2010, frá forstöðumönnum skólasafna vegna fækkunar á tímum til kennslu á bókasöfnum grunnskólanna. Einnig lögð fram stuðningsyfirlýsing frá Félagi fagfólks á skólasöfnum.

Málið rætt.

Skólanefnd samþykkti eftirfarandi bókun:

""Fækkun tíma fyrir kennslu á bókasöfnum grunnskólanna er liður í almennum hagræðingaraðgerðum bæjaryfirvalda fyrir fjárhagsárið 2010. Tillögur um leiðir til hagræðingar í grunnskólum voru unnar í samstarfi fræðslustjóra og skólastjóra og var fækkun tíma á bókasöfnum skólanna ein af mörgum öðrum leiðum sem lagðar voru til og samþykktar í bæjarráði. Skólanefnd lítur svo á að ákvörðunin sé óafturkallanleg fyrir fjárhagsárið 2010 enda unnin í nánu samstarfi við skólastjórnendur. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2011 verður farið vandlega yfir alla rekstrarþætti skólanna með hugsanlega endurskoðun í huga.""

Lögð fram umsókn um ferðastyrk frá Hjördísi Ýr Sveinsdóttur.

Skólanefnd samþykkir styrk að upphæð kr. 35.000.

Lögð fram umsókn um leyfi án launa skólaárið 2010 - 2011 frá aðstoðarskólastjóra Smáraskóla.

Skólanefnd samþykkir umsóknina.

Árni Þór Hilmarsson, fræðslustjóri, fór yfir helstu atriði skýrslunnar sem varða námsárangur nemenda í grunnskólum Kópavogs.

Skólanefnd fagnar góðum árangri skólanna í Kópavogi.

Lagt fram bréf, dags. 26. apríl 2010, frá Sigfríði Sigurðardóttur þar sem hún segir upp stöðu sinni sem aðstoðarskólastjóri Lindaskóla frá og með 31. júlí 2010.

a)Skólanefnd tilnefnir tvo fulltrúa úr meirihluta og einn úr minnihluta til að vinna með fræðsluskrifstofu við úrvinnslu umsókna um stöðu skólastjóra Smáraskóla.

b)Sigurður Haukur Gíslason vakti máls á vandamálum varðandi One - System skjalavistunar- og fundargerðarkerfið.

Málið rætt.

Ákveðið að ræða málið frekar á næsta fundi.