Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ósk um endurskoðun á stöðugildum deildarstjóra við grunnskóla Kópavogs

Málsnúmer: 1004346

Ferill máls

01

Skólanefnd - 8. fundur

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram erindi frá skólastjórum, dags. 20. apríl 2010, með ósk um endurskoðun á ákvörðun bæjaryfirvalda um að fækka stöðugildum deildarstjóra við grunnskólana.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Málið rætt.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Skólanefnd samþykkti eftirfarandi bókun:</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;""Í sparnaðartillögum grunnskóla vegna fjárhagsáætlunar 2010 sem unnar voru í samráði við skólastjóra og samþykktar í bæjarráði er gert ráð fyrir ""að stjórnunarkvóti verði&nbsp;minnkaður um ca. 1 stöðugildi deildarstjóra pr. skóla að meðaltali"". Í áætlun er gert ráð fyrir kr. 15 milljóna hagræðingu í þessum þætti. Með þessari sparnaðaraðgerð, ásamt ýmsum öðrum, tókst að komast hjá enn meiri niðurskurði á kennslutímamagni en raun varð. Skólanefnd lítur svo á að það sé ekki á hennar valdi að breyta þessari ákvörðun bæjarráðs vegna fjárhagsársins 2010. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2011 verður farið vandlega yfir alla rekstrarþætti skólanna með endurskoðun í huga. &nbsp;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;