Starfskjör bæjarstjóra 2010
Málsnúmer: 1006288
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2586. fundur
Frestað mál frá fundi bæjarráðs 24/2, frá starfsmannastjóra, dags. 23/2, tillaga að breyttum ráðningarsamningi bæjarstjóra.

Starfsmannastjóri sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir tillögu að breyttum ráðningarsamningi.

02
Bæjarráð - 2584. fundur
Frá starfsmannastjóra, dags. 23/2, tillaga að breyttum ráðningarsamningi bæjarstjóra.

Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.

03
Bæjarráð - 2555. fundur
Tekinn fyrir ráðningarsamningur við Guðrúnu Pálsdóttur, bæjarstjóra, sem vísað var til afgreiðslu bæjarráðs frá bæjarstjórn þann 22. júní sl.

Bæjarráð samþykkir ráðningarsamning við bæjarstjóra með þremur samhljóða atkvæðum með þeirri breytingu að uppsagnarfrestur verði innan 12 mánaða biðlauna. Tveir fulltrúar sátu hjá.

Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Fyrir rétt um ári fluttu fulltrúar Samfylkingar og VG stefnumarkandi tillögu að eigin sögn sem sneri að einstökum nefndum og ráðum sem bæjarstjóri situr sérstaklega í í krafti embættis síns og ætti ekki að greiða sérstaklega fyrir. Var þá um að ræða starf hafnarstjóra og setu í hafnarstjórn. Í núverandi ráðningarsamningi er ekki að finna orð um þessa stefnumarkandi tillögu. Ljóst er að laun bæjarstjóra eru að hækka töluvert.

Ómar Stefánsson"

Gunnar Ingi Birgisson óskar eftir upplýsingum um laun sveitarstjóra í nágrannasveitarfélögum Kópavogs.

Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, vék af fundi undir þessum lið.

04
Bæjarstjórn - 1020. fundur
Lögð fram tillaga um starfskjör bæjarstjóra.

Til máls tók Hjálmar Hjálmarsson og gerði hann grein fyrir tillögu að ráðningarsamningi Kópavogsbæjar við Guðrúnu Pálsdóttur í starf bæjarstjóra.

Til máls tóku Gunnar Ingi Birgisson, sem lagði til að afgreiðslu samningsins yrði frestað, Ómar Stefánsson, Guðríður Arnardóttir, sem lagði til að samningnum yrði vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs, Hjálmar Hjálmarsson, Gunnar Ingi Birgisson, Ómar Stefánsson og Hjálmar Hjálmarsson.

Ármann Kr. Ólafsson tók til máls um stjórn fundarins. Forseti tilkynnti að kostnaðarútreikningur vegna samningsins verði lagður fram í bæjarráði.

Forseti bar undir fundinn tillögu um að vísa afgreiðslu samningsins til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs. Tillagan samþykkt með tíu samhljóða atkvæðum en einn bæjarfulltrúi sat hjá.

Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, vék af fundi undir þessum lið.