Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Auðbrekka. Beiðni um hraðahindrun

Málsnúmer: 1009148

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 26. fundur

Umferðarskipulag í Auðbrekku og nágrenni hefur verið til umfjöllunar og úrvinnslu á umhverfissviði, sbr. samþykkt umhverfis- og samgöngunefndar, dags. 28. nóvember 2011 um úrvinnslu tillagna. Sviðsstjóri fór yfir valkosti varðandi umferð í hverfinu, sem fyrir liggja. Frestað.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 12. fundur

Á fundi umferðarnefndar 21. september 2010 var lagt fram erindi frá íbúa í Auðbrekku þar sem óskað var eftir hraðahindrun í götuna. Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 28. nóvember 2011 var málið lagt fram á ný.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að skoða tillögur sem fram komu á fundinum. Tryggvi Þórðarson vék af fundi 17:50 og Brynjar Örn Gunnarsson tók sæti hans.