Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 26. fundur

í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Björnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Helgi Jóhannesson - aðalmaður
  • Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Tryggvi Magnús Þórðarson - áheyrnarfulltrúi
  • Gylfi Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Steingrímur Hauksson
  • Guðmundur Guðbjart Gunnarsson

Ritari

  • Guðmundur G. Gunnarsson

Dagskrá fundar

01

Óskað eftir umsögn um drög að heildstæðu frumvarpi til náttúruverndarlaga

Á fundi bæjarráðs 13. september 2012 var á dagskrá "drög að heildstæðu frumvarpi til náttúruverndarlaga" og var erindinu vísað til sviðsstjóra til umsagnar. Umhverfis- og samgöngunefnd fellst fyrir sitt leyti á umsögn sviðsstjóra dags. 17. október 2012.

02

Strætisvagnaskýli í efstu byggðum Kópavogs

Lagt fram erindi íbúa í Vatnsendahverfi dags. 14. september 2012, ábending varðandi aðstöðu fyrir farþega strætisvagna. Lögð fram staðsetning biðstöðva við Vatnsendaveg og Vatnsendahvarf og tillaga um að gerð verði útskot fyrir stætisvagna á þessum biðstöðvum og komi til framkvæmda á næstu árum. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillögu um gerð útskota fyrir strætisvagna og vísar til fjárhagsáætlunar.

03

Kópavogshafnir. Áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum

Lögð fram drög að "áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum." Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leyti drög að "áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum."

04

Bílastæði við Dalbrekku

Á fundi bæjarráðs 27. september 2012 var til umfjöllunar erindi frá Högum hf. varðandi bílastæði við Dalbrekku og var erindinu vísað til umsagnar sviðsstjóra og umhverfis- og samgöngunefndar. Sviðsstjóri gerði grein fyrir erindinu. Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að ekki verði gerður samningur til 15 ára en heimiluð verði notkun bílastæða við Dalbrekku 6 enda eru bílastæðin til almennra nota. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

05

Digranesheiði, bifreiðastæði

Lagt fram erindi íbúa við Digranesheiði dags. 30. september 2012, varðandi bifreiðastöður í götunni og ósk um að merki verði sett upp í götunni, sem banni bifreiðastöður. Sviðsstjóri upplýsti um að fjallað hefði verið um hliðstætt erindi í ágúst 2011 og þá því svarað til að ekki stæði til að setja upp skilti við Digranesheiði, vegna bifreiða sem lagt er við götubrún. Umhverfis- og samgöngunefnd telur ekki þörf á sérstökum merkingum, varðandi bifreiðastöður í götunni.

06

Götumerkingar á göngustígum

Lögð fram ábending frá íbúafundi um aðalskipulag í lok september sl. Ábending varðar merkingu gatna á gönguleiðum, þar sem aðstæður eru þannig að komið er að götum við enda götubotnlanga og því ekki til staðar gatnaheiti viðkomandi götu. Umhverfis- og samgöngunefnd felur sviðsstjóra umhverfissviðs að kanna undirtektir nágrannasveitarfélaganna til hugmyndarinnar.

07

Samvinna um skipulag og lagningu hjólaleiða á höfuðborgarsvæðinu

Á fundi bæjarráðs 4. október 2012 var til umfjöllunar erindi Landssambands hjólreiðamanna (LHM) dags. 1. október 2012 og var erindinu vísað til umhverfis- og samgöngunefndar. Erindið fjallar um "samvinnu um skipulagi og lagningu hjólaleiða á höfuðborgarsvæðinu." Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti Hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar á fundi nefndarinnar 7. maí 2012. Í áætlun Kópavogsbæjar eru metnaðarfull markmið, sem grundvallast á samráði við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, Vegagerðina og LHM.

08

Auðbrekka. Beiðni um hraðahindrun

Umferðarskipulag í Auðbrekku og nágrenni hefur verið til umfjöllunar og úrvinnslu á umhverfissviði, sbr. samþykkt umhverfis- og samgöngunefndar, dags. 28. nóvember 2011 um úrvinnslu tillagna. Sviðsstjóri fór yfir valkosti varðandi umferð í hverfinu, sem fyrir liggja. Frestað.

09

Forgangsrein Strætó

Á fundi bæjarráðs 4. október 2012 var samþykkt tillaga að framkvæmd Vegagerðarinnar á Hafnarfjarðarvegi, sbr. uppdrátt dags. febrúar 2012. Tillagan varðar gerð forgangsreinar fyrir Strætó við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Fífuhvammsvegar. Sviðsstjóri gerði grein fyrir framkvæmdinni.

10

Digranesvegur. Götuhönnun

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 27. ágúst 2012, var til umfjöllunar tillaga að umferðarskipulagi á Digranesvegi. Á fundinum var samþykkt að unnið verði eftir fyrirliggjandi tillögu. Sviðsstjóri gerði grein fyrir tillögunni.

11

Hávaðakort og kort yfir stóra vegi.

Umhverfis- og samgöngunefnd hefur fjallað um gerð hávaðakorts og korts yfir stóra vegi. Sviðsstjóri gerði grein fyrir stöðu vinnu við gerð kortsins.

12

Ársfundur Umhverfisstofnunar 2012

Borist hefur erindi Umhverfisstofnunar varðandi ársfund Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga 2012, sem haldinn verður í Skagafirði 9. nóvember nk. Lagt fram.

Fulltrúi Framsóknarflokks spyr um stöðu máls varðandi breytingu bifreiðar í metanbíl.