Hugmyndir til tekjuaukningar fyrir Hafnarstjórn Kópavogshafna.
Málsnúmer: 1102660
Ferill máls
01
Hafnarstjórn - 79. fundur
Formaður fór yfir tillögur frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og ræddi þær aðgerðir sem gripið hefði verið til varðandi úrbætur.
Hafnarstjóra falið að kaupa lénið kopavogshafnir.is og tengingu við heimasíðu Kópavogsbæjar. Stjórnin færði formanni þakkir fyrir að útbúa heimasíðuna.
02
Menningar- og þróunarráð - 1. fundur
Sjálfstæðismenn í hafnarstjórn hafa lagt fram hugmyndir til tekjuaukningar fyrir Kópavogshöfn. Þær voru ræddar sem og aðrar leiðir til að efla lífið við höfnina. Nefndarmenn sammála um að huga þurfi vel að útfærslu og þróun svæðisins og ná samstöðu um hana.
<DIV>Málinu frestað til næsta fundar.</DIV>
03
Bæjarráð - 2585. fundur
<DIV><DIV>Bæjarráð lýsir ánægju sinni með framkomnar tillögur Sjálfstæðisflokksins um tekjuaukningu fyrir höfnina og vísar þeim til frekari úrvinnslu skipulagsnefndar vegna vinnu við gerð aðalskipulags og til menningar- og þróunarráðs til frekari úrvinnslu. Bæjarráð telur mikilvægt að stefna vegna hafnarsvæðisins liggi fyrir sem fyrst.</DIV></DIV>
04
Hafnarstjórn - 72. fundur
Fulltúar Sjálfstæðisflokksins í hafnarstjórn lögðu fram hugmyndir í 5 liðum um tekjuaukningu fyrir hafnarstjórn Kópavogshafna:$line$1. Hvetja til og auglýsa eftir áhugasömum aðilum í atvinnurekstur í höfninni. Þetta gætu verið aðilar sem vilja bjóða uppá: $line$a. Skoðunarferðir$line$b. Sjóstangaveiði $line$c. Köfun$line$d. Seglbretti - sjóskíði - sæþotur$line$e. Þetta vinnur að því að fá líf í höfnina$line$$line$$line$2. Auglýsa lóðir til sölu á hafnarsvæðinu - það getur vel verið að ekki sé talin mikil eftirspurn núna, en það er óvíst þangað til reynt er. Einnig er gott, þegar eftirspurnin byrjar, að vera komin og klár með það sem í boði er. $line$a. Setja lóðirnar strax á heimasíðu Kópavogs það er ókeypis auglýsing$line$b. Prófa að auglýsa lóðirnar í fjölmiðlum a.m.k. einu sinni$line$$line$$line$3. Koma upp aðstöðu til að taka upp og setja niður litla og meðalstóra báta. $line$a. Hér væri hægt að nýta kranann sem til er$line$b. Þetta er eftirsótt þjónusta sem mikið væri greitt fyrir$line$c. Þetta vinnur að því að fá líf í höfnina$line$d. Einnig væri hægt að bjóða uppá leigu á þegar ónýttu landsvæði hafnarinnar fyrir báta til að standa yfir veturinn$line$$line$$line$4. Hvetja til löndunar frá smábátum sem gera út frá Höfuðborgarsvæðinu$line$a. Þetta vinnur að því að fá líf í höfnina$line$b. Ef Guðmundur Geirdal getur þetta þá ættu aðrir að geta það líka$line$$line$$line$5. Koma Kópavogshöfn inná heimasíðu bæjarins. Það er sjálfsagt að höfnin sé með sitt eigið svæði á heimasíðunni. Þar er hægt að útlista og auglýsa allt það sem höfnin hefur uppá að bjóða s.s. það sem er hér að ofan. Það er óþarfi að missa af þeirri ókeypis kynningu og auglýsingu sem höfnin fengi á heimasíðunni. $line$
<DIV></DIV>