Austurkór 104 (áður 92), breytt deiliskipulag
Málsnúmer: 1110159
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1212. fundur
Lagt fram erindi skipulags- og byggingardeildar um að endurbirta aulýsingu sem birt var í B- deild Stjórnartíðinda þann 12. maí 2012 um deiliskipulagsuppdrátt vegna Austurkórs nr. 104 í samræmi við kynnta tillögu og samþykktir nágranna.
Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að endurbirta deiliskipulagsuppdrátt fyrir Austurkór 104 dags. 27. júní 2012 í B-deild Stjórnartíðinda.
02
Bæjarstjórn - 1055. fundur
Með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2012 samþykkir skipulagsnefnd umrædda tillögu.$line$
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir einróma tillögu að breyttu deiliskipulagi Austurkór 104.
03
Skipulagsnefnd - 1207. fundur
Lagt fram erindi Jóns Hrafns Hlöðverssonar, byggingafræðings fh. lóðarhafa dags. 15. mars 2012. Í erindinu felst að fyrirhugað fjölbýlishús er byggt út úr reit sem menur 0.8 m á hvorri hlið. Þá lagt fram samþykki lóðarhafa Austurkórs 102, 179, 181, 183 og 185 dags. 7., 12., 14. og 16. mars 2012.
Með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2012 samþykkir skipulagsnefnd umrædda tillögu.Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
04
Bæjarstjórn - 1050. fundur
Hafnað. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 9 atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi var á móti og einn sat hjá. Bæjarstjórn hafnar því erindinu.
05
Skipulagsnefnd - 1199. fundur
Lagt fram erindi Einars Ólafssonar fh. Einarfélagsins Akralindar ehf. dags. 7. desember 2011 þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsnefndar um hvort meðfylgjandi tillaga að óverulegri breytingu fáist samþykkt. Í tillögunni felst að fyrirhugað fjölbýlishús er byggt út úr reit sem menur 0.8 m á hvorri hlið.
Hafnað. Vísað til afgeiðslu bæjarstjórnar.
06
Bæjarstjórn - 1046. fundur
Lið 15 í fundargerð skipulagsnefndar 15/11 vísað til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með átta atkvæðum gegn einu. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.
07
Skipulagsnefnd - 1196. fundur
Lagt fram erindi Einars Ólafssonar fh. Eignarhaldsfélags Akralindar ehf. dags. 10 október 2011 þar sem óskað er eftir nýrri grenndarkynningu fyrir Austurkór 104 (áður 92).$line$Enn fremur greint frá fundi sem haldinn var 14. nóvember 2011 að ósk lóðarhafa Austurkórs 104 með formanni skipulagsnefndar. Fundinn sat jafnfram skipulagsstjóri og sviðsstjóri umhverfissviðs að hluta. Á fundinum lögðu lóðarhafar Austurkórs 104 fram eftirtalin gögn: Minnispunktar á þremur blöðum A4 varðandi fund með Guðnýju Dóru Gestsdóttur 3. nóvember 2011 vegna Austurkórs 104 (92).$line$Þá lagt fram minnisblöð skipulagsstjóra dags. 15. nóvember 2011 um feril málins og 15. nóvember 2011 "Drög að svari við bréfi Einar Ólafssonar dags. 3. nóvember 2011 sem varðar aðkomu Skipulags- og byggingardeildar að málinu."
<P style="MARGIN: 0cm 0cm 10pt" class=MsoNormal><FONT face=Calibri>Skipulagsnefnd vísar í 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um grenndarkynningu á óverulegri breytingu á deiliskipulagi en þar segir m.a. að skipulagsnefnd skuli láta fara fram grenndarkynningu. Skipulagsnefnd hefur ítrekað fjallað um og kynnt breytingar á deiliskipulagi við Austurkór 104 (92) þar sem tekið var m.a. á mögulegum snúningi á byggingarreit lóðarinnar (51° og 35°). Neikvæð afstaða hagsmunaaðila, í næsta nágrenni lóðarinnar, til óskar lóðarhafa Austurkórs 104 (92) um að snúa téðum byggingarreit, hefur ítrekað komið fram. Skipulagsnefnd telur fullreynt að sætta sjónarmið varðandi það atriði að snúa byggingarreit lóðarinnar við Austurkór 104 og hafnar því ósk lóðarhafa um nýja grenndarkynningu.</FONT></P><P style="MARGIN: 0cm 0cm 10pt" class=MsoNormal><FONT face=Calibri>Vísað til bæjarstjórnar.</FONT></P>