Skipulagsnefnd - 1207. fundur
í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birgir Hlynur Sigurðsson - embættismaður
- Smári Magnús Smárason - embættismaður
- Guðný Dóra Gestsdóttir - aðalfulltrúi
- Guðmundur Örn Jónsson - aðalfulltrúi
- Vilhjálmur Einarsson - aðalfulltrúi
- Jóhann Ísberg - aðalfulltrúi
- Kristinn Dagur Gissurarson - aðalfulltrúi
- Steingrímur Hauksson - embættismaður
- Einar Ingvarsson - áheyrnarfulltrúi
Ritari
- Birgir H. Sigurðsson
Dagskrá fundar
1202010F - Skipulagsnefnd 21. febrúar 2012 $line$1205. fundur $line$$line$1201109 - Austurkór 74, breytt deiliskipulag $line$Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir erindið. $line$ $line$1111452 - Huldubraut 15, umsókn um byggingarleyfi. $line$Bæjarráð staðfestir afgreiðslu byggingarnefndar og samþykkir erindið. $line$$line$1202321 - Austurkór 78. Rými í kjallara. $line$Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir erindið. $line$ $line$1202318 - Austurkór 88-92. Breytt deiliskipulag. $line$Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar erindinu. $line$ $line$1103343 - Lausar lóðir apríl 2011 $line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð að lausar lóðir verði auglýstar, sbr. lið 15 í fundargerð 21/2. $line$ $line$Bæjarráð samþykkir að lóðirnar skuli auglýstar og felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir. $line$ $line$
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi lóðarhafa nr. 108 við Fjallalind dags. 7. janúar 2011. $line$ $line$Skipulagsnefnd samþykkti 18. janúar 2012 á grundvelli umsagnar lögmanns umhverfissviðs og með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Fjallalindar 104, 106, 147, 149 og 151. Skipulagsnefnd óskar jafnframt eftir upplýsingum um kostnað vegna skemmda á umræddum göngustíg. Ábendingar bárust frá Kristínu Ragnarsdóttur, sbr. erindi dags. 20. febrúar 2012.$line$
Samþykkt. Á það skal bent að lóðarhafi framkvæmdi ítrekað án heimildar. Skipulagsnefnd vísar til fyrri bókana varðandi gjaldtöku.Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Sigurþórs Aðalsteinssonar, arkitekts f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir að byggja við sökkulrými við norðausturgafl hússins að Bakkasmára 16 og reisa þar á garðskála. Uppdráttur í mkv. 1:200 og 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 6. desember 2011. Tillagan var grenndarkynnt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lóðarhöfum Bakkasmára 14, 18, 21,. 23 og Bergsmára 7 og 8. Þá lagt fram undirritað samþykki ofangreindra lóðarhafa fyrir fyrirhuguðum breytingu.
Samþykkt.Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Lögð fram tillaga Umhverfissviðs dags. 12. mars 2012 um staðsetningu hringtorgs við Dalveg 10-14 og lóð Sorpu í samræmi við greinargerð vinnustofunar Þverár dags. í ágúst 2005 varðandi umferðarmál á m.a. Dalvegi. Ofangreind greinargerð var samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs 11. október 2005. Í tillögunni felst að vinstri begja verður aðeins heimiluð lögreglubifreiðum við gatnamót Dalvegar 18. Teikningar frá vinnustofunni Þverá efh dags. 12. mars 2012 í mkv. 1:2000
Samþykkt.Skipulagsnefnd felur skipulags- og byggingardeild að hefja undirbúning að breytu deiliskipulagi.
Lagt fram erindi Konráðs Adolphssonar dags. 27. febrúar 2012, lóðarhafa Oddfellowblettar sem er 4.5 ha svæði við Hólmsarbrú, landnr. 206-6820. Í erindinu er þess óskað að koma fyrir tveimur 5 hæða íbúðarbyggingum sérstaklega ætlað eldri borgurum á landinu
Með tilvísan til afgreiðslu skipulagsnefndar frá 18. maí 2010 er ofangreindu erindi hafnað.Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Lagt fram að nýju erindi Sigurðar Jónssonar, skipulags- og byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Ölfuss dags. 5. janúar 2012. Erindinu fylgir skipulagslýsing og kynningargögn vegna deiliskipulags ylræktarvers við Hellisheiðavirkjun. $line$Á fundi skipulagsnefndar 17. janúar 2012 var afgreiðslu erindisins frestað og óskað eftir umsögn heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis um tillöguna vegna nálægðar fyrirhugaðs framkvæmdasvæðis við vatnsverndarsvæða höfuðborgarsvæðisins.$line$Lögð fram umsögn HHK. dags. 28. febrúar 2012. $line$
Á gundvelli niðurstöðu heilbrigðisnefndar frá 27. febrúar 2012 gerir skipulagsnefnd Kópavogs ekki athugasemdir við skipulagslýsingu og kynningargögn vegna fyrirhugaðrar deiliskipulagsbreytingar ylræktarvers við Hellisheiðarvirkjun.Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Lögð fram tillaga Ríkharðs Oddssonar, byggingatæknifræðings f.h. lóðarhafa dags. 26. janúar 2012 þar sem óskað er eftir að breyta deiliskipulagi á lóðunum nr. 7 og 9 við Álmakór. Í breytingunni felst að á lóðinu verði byggð parhús á einni hæð í stað einbýlishúss á tveimur hæðum, byggingarreitir stækka, nýtingarhlutfall sem og hámarks byggingarmagn breytist. Uppdrættir í mkv. 1:200 dags. 26. janúar 2012.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Álmakórs 1, 2. 3. 4, 5, 6, 8, 10, 11, 13 og 17.
Frá byggingarfulltrúa.$line$Lagt fram erindi Hallgríms Smára Jónssonar með leyfi lóðarhafa eignarhaldsfélagsins Okkar efh. um heimild til að veita Bílaleigu Kópavogs ehf. heimild til að hefja rekstur bílaleigu í bílageymslu á lóðinni að Digranesvegi 8. Í fullum rekstri er gert ráð fyrir 8 útleigubílum og er starfsemin hluti að núverandi bón og þrifstöð. Einnig lögð fram fyrirspurn Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis til byggingarfulltrúans í Kópavogs dags. 8. febrúar 2012 þar sem óskað er umsagnar hvort leyfisveiting til umrædds rekstrar sé í samræmi við forsendur við nýtingu húsnæðis.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga að kynna umrætt erindi fyrir lóðarhöfum Digranesvegar 8, 10, 12, Vogatungu 22, 24 og 26.
Lagt fram erindi Einar Páls Einarssonar Hjallahlíð 19c f.h. flugmódeldeildar Þyts. Í erindinu er óska eftir leyfi til að koma fyrir rýrri flugbraut sem er 10 metrar á breidd og 100 metrar á lengd fyrir módelflug. Fyrirhuguð flugbraut liggur þvert á núverandi flugbraut sem staðsett er vestan Bláfjallavegar sbr. meðfylgjandi loftmynd. Engar byggingar eru áformaðar við flugbrautina.
Frestað.Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn Flugmálastjórnar, HHK, Svifflugfélags Íslands og umhverfis- og samgöngunefndar.
Lögð fram tillaga Stefáns Hallssonar byggingartæknifræðings að breyttu deiliskipulagi við Ástún 6. Í breytingunni felst að fyrirhuguðum byggingarreit er breytt og hann aðlagaður aðliggjandi byggingum, fyrirhuguð bílgeymsla er felld út, fjöldi íbúða breytist úr 12 í 14, aðkomu er breytt og fyrirkomulagi bílastæða á lóð.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa ofangreinda breytingu á deiliskipulagi við Ástún 6.Vísað til afgreiðslu bæjarráðs. Guðmundur Örn situr hjá.
Frá byggingarfulltrúa.$line$Lagt fram erindi Kristins Ragnarsonar, arkitekts f.h. lóðarhafa að byggingu fjölbýlishús með 7 íbúðum á þremur hæðum. Tillagan gerir ráð fyrir 4 íbúðum yfir 80 m2 og þremur undir 80 m2. Bílastæði á lóð verða 11 og nýtingarhlutfall er áætlað 1.15
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna ofangreinda tillögu fyrir lóðarhöfum Furugrundar 36, 38, 40, 42, 46, 48, 50, 52, 54 og 56.
Lagt fram erindi Jóns Hrafns Hlöðverssonar, byggingafræðings fh. lóðarhafa dags. 15. mars 2012. Í erindinu felst að fyrirhugað fjölbýlishús er byggt út úr reit sem menur 0.8 m á hvorri hlið. Þá lagt fram samþykki lóðarhafa Austurkórs 102, 179, 181, 183 og 185 dags. 7., 12., 14. og 16. mars 2012.
Með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2012 samþykkir skipulagsnefnd umrædda tillögu.Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Lagt fram erindi Sigurðar Halldórssonar arkitekts dags. 15. mars 2012 f.h. lóðarhafa að Kópavogsbakka 2.$line$Í erindinu felst að nýta rými undir húsinu sem íveruherbergi sbr. uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. í mars 2012.
Skipulagsnefnd samþykkir á grundvelli 43. gr. skipulagslaga að kynna erindið fyrir lóðarhöfum Kópavogsbakka 1, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11, 13, og 15. Guðmundur Örn situr hjá.
Lögð fram drög að breyttu skipulagi við Tóna- og Turnahvarf. Í breytingunni felst að iðnaðar- og verslunarsvæði verði íbúðarsvæði. Uppdrættir í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum.
Kynnt. Skipulagsnefnd samþykkir að fela Skipulags- og byggingardeild að hefja undirbúning á breytingu á skipulagi svæðisins sbr. ofangreint.
Lögð fram tillaga Skipulags- og byggingardeildar að breyttu deiliskipulagi við Kópavogstún og Kópavogsgerði að breyttu deiliskipulagi,- tillögur A,B og C. Uppdrættir í mkv. 1:1000 dags. 20. mars 2012.
Frestað.
Tilnefning í starfshóp um Kópavogstún.
Kristinn Dagur Gissurason verður fulltrúi nefndarinnar.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir vinnu rýnihóps um endurskoðun Svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins. $line$
Greint frá stöðu mála.