Flugferlar yfir Kársnesi, sem frestað var á fundi 77 í hafnarstjórn.
Málsnúmer: 1110195
Ferill máls
01
Hafnarstjórn - 79. fundur
Lagt fram bréf frá umhverfissviðs, skipulags- og byggingardeild, dags. 3.1. 2012.
Hafnarstjórn tekur undir bókun skipulagsnefndar, þar sem hún fagnar því að flugmálastjórn muni fylgja eftir reglum um flugumferð að og frá flugvellinum.Hafnarstjórn tekur undir bókun skipulagsnefndar er varðar komu stórra vöruflutningaskipa í Kópavogshöfn, hæðartakmörk þeirra m.t.t. flugumferðar og tilkynningaskyldu, sem rædd var á fundi skipulagsstjóra Kópavogs og fulltrúa Ísavía ohf., skv. meðfylgjandi minnisblaði dags. 22.11. 2011.
02
Skipulagsnefnd - 1199. fundur
Lagt fram að nýju erindi Garðars H. Guðjónssonar, Hlégerði 14 dags. 13. október 2011 varðandi Reykjavíkurflugvöll - áhrif á skipulag og umhverfi í Kópavogi. Á fundi skipulagsnefndar 17. október sl. óskaði eftir umsögn Skipulags- og byggingardeildar og að leitað verði leiða til að kalla hagsmunaaðila til samráðs með það að markmiði að finna ásættanlega lausn á vandamálinu.$line$ $line$Skipulagsnefnd telur það varða hagsmuni og lífsgæði íbúanna á Kársnesi að lausn verði fundin á hljóðmengun sem hlýst að notkun norður/suðurbrautar Reykjavíkurflugvallar svo að nábýið við flugvöllinn verði ásættanlegt á meðan hann er enn í Vatnsmýrinni.$line$$line$Þá lagðir fram minnispunktar frá fundi sem skipulagsstjóri átti með fulltrúum Isavia ohf. 22 nóvember 2011 þar sem rætt var m.a. um hávaðavarnir frá flugumferð yfir byggð á Kársnesi.
Skipulagsnefnd fagnar því að flugmannastjórn muni fylgja eftir reglum um flugumferð að og frá flugvellinum.
03
Hafnarstjórn - 77. fundur
Lagt fram. Rætt. Frestað.
04
Skipulagsnefnd - 1195. fundur
Lagt fram erindiGarðars H. Guðjónssonar, Hlégerði 14 dags. 13. október 2011 varðandi Reykjavíkurflugvöll - áhrif á skipulag og umhverfi í Kópavogi.

Frestað.

Skipulagsnefnd óskar umsagnar Skipulags- og byggingardeildar og að leitað verði leiða til að kalla hagsmunaaðila til samráðs með það að markmiði að finna ásættanlega lausn á vandamálinu.

Skipulagsnefnd telur það varða hagsmuni og lífsgæði íbúanna á Kársnesi að lausn verði fundin á hljóðmengun sem hlýst að notkun norður/suðurbrautar Reykjavíkurflugvallar svo að nábýið við flugvöllinn verði ásættanlegt á meðan hann er enn í Vatnsmýrinni.