Atvinnutorg
Málsnúmer: 1110242
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2646. fundur
Frá sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 15/6, yfirlit yfir stöðu skráninga í Atvinnutorgi.
Bæjarráð vísar erindinu til atvinnu- og þróunarráðs ásamt fyrirliggjandi upplýsingum um Vinnandi veg til upplýsinga.
02
Félagsmálaráð - 1326. fundur
Lagt fram til kynningar. Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa og íbúðadeildar og Unnur Ósk Pálsdóttir ráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.
03
Bæjarstjórn - 1048. fundur
Mál, sem ágreiningur var um í bæjarráði, sbr. lið 9 í fundargerð 8/12.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa erindinu til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu með sjö samhljóða atkvæðum.
04
Bæjarráð - 2620. fundur
Frá verkefnastjóra velferðarsviðs, dags. 7/12, óskað heimildar til að auglýsa eftir atvinnuráðgjafa, samþykkt á fundi félagsmálaráðs 6/12 og vísað til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir erindið með þremur atkvæðum gegn einu með þeirri breytingu að menntunarkrafa verði: <EM>Menntun sem nýtist í starfi</EM>. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.Bæjarráð óskar eftir að félagsmálastjóri mæti á næsta fund ráðsins og geri frekari grein fyrir verkefninu. Þá verði ekki ráðið í starfið fyrr en nánari skilgreining verkefnisins liggur fyrir.Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Ég sit hjá við afgreiðslu málsins þar sem kostnaðargreining liggur ekki fyrir og tel óeðlilegt að auglýsa fyrr en þær upplýsingar eru komnar fram.</EM><EM>Ármann Kr. Ólafsson"</EM>Hlé var gert á fundi kl. 9:33. Fundi var fram haldið kl. 9:48.
05
Félagsmálaráð - 1320. fundur
Félagsmálaráð felur félagsmálastjóra að hefja undirbúning verkefnisins og óska jafnframt heimildar bæjarráðs að auglýsa eftir starfsfólki.