Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Félagsmálaráð - 1320. fundur

í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Aðalsteinn Sigfússon - félagsmálastjóri
  • Guðríður Eldey Arnardóttir - formaður
  • Þór Heiðar Ásgeirsson - aðalfulltrúi
  • Guðbjörg Sveinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Rannveig María Þorsteinsdóttir - verkefnastjóri
  • Kjartan Sigurgeirsson - aðalfulltrúi

Ritari

  • Rannveig María Þorsteinsdóttir

Dagskrá fundar

01

Fundargerðir teymisfunda 2011

Fundargerðir frá 16. 23. og 30. nóvember 2011 lagðar fram. Elín Sigríður Jósefsdóttir ráðgjafi í ráðgjafa og íbúðadeild situr fundinn undir þessum lið.

02

Áfrýjun. Fjárhagsaðstoð

Skráð í trúnaðarbók. Elín Sigríður Jósefsdóttir ráðgjafi í ráðgjafa og íbúðadeild situr fundinn undir þessum lið.

03

Úthlutunarhópur um leiguhúsnæði

Fundargerð frá 29. nóvember 2011 lögð fram ásamt fylgigögnum. Skráð í trúnaðarbók. Elín Sigríður Jósefsdóttir ráðgjafi í ráðgjafa og íbúðadeild situr fundinn undir þessum lið.

04

Skoðun á rekstri og faglegu starfi

Frestað. Óskað eftir frekari gögnum frá tilboðsaðila. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnisstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

05

Umsókn um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda

Samþykkt. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnisstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

06

Samningur við Endurhæfingu ehf

Félagsmálaráð telur ekki tímabært að endurnýja samning við Endurhæfingu efh. þar sem verið er að skoða samning um rekstur laugarinnar í Boðaþingi. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnisstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

07

Samningur um Dvöl

Lögð fram drög að nýjum samningi ásamt greinargerð. Samþykkt. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnisstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

08

Einstaklingssamningar

Lagt fram til upplýsingar. Þar sem vinnuhópur um NPA hefur enn ekki skilað tillögum með útfærslu á þjónustu NPA samþykkir félagsmálaráð að endurnýjun einstaklingssamninga um áramótin skuli byggja á viðmiðunarreglum þjónustudeildar og felur starfsmönnum að leggja fram drög að reglum og drög að einstaklingssamningum á næsta fundi ráðsins. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnisstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

09

Beiðni um leyfi til að auglýsa starf yfirþroskaþjálfa í Hrauntungu áfangaheimili.

Félagsmálaráð samþykkir fyrir sitt leyti. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnisstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

10

Beiðni um liðveislu og frekari liðveislu

Erindi vísað til þjónustudeildar fatlaðra. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnisstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

11

Umsókn um þjónustusamning - áfrýjun

Þar sem beðið er eftir niðurstöðu vinnuhóps NPA samþykkir félagsmálaráð að gera tímabundinn einstaklingssamning með hliðsjón af þeim drögum að viðmiðunarreglum sem lagðar voru fram fyrr á fundinum. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnisstjóri sátu fundinn undir þessum lið.

12

Stjórnsýslukæra vegna synjunar félagsmálaráðs að hluta á beiðni um heimgreiðslu.

Úrskurður úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála lagður fram til kynningar.

Lagt fram til kynningar

13

Beiðni um styrk til reksturs Stígamóta fyrir árið 2012

Samþykkt að veita styrk að upphæð kr. 800 þúsund.

14

Erindisbréf félagsmálaráðs

Samþykkt með þeirri breytingu að félagsmálaráð úthlutar félagslegu leiguhúsnæði.

15

Atvinnutorg

Félagsmálaráð felur félagsmálastjóra að hefja undirbúning verkefnisins og óska jafnframt heimildar bæjarráðs að auglýsa eftir starfsfólki.

16

SÁÁ óskar eftir þjónustusamningi

Frestað og félagsmálastjóra falið að kanna frekar.

17

Tölulegar upplýsingar frá Félagsþjónustu um stöðu mála, mánaðarlegar skýrslur

Lagt fram til kynningar.

18

Framtíðarhópur SSH

Atvinnustefna

Lagt fram til kynningar.

19

Framtíðarhópur SSH

Barnavernd

Lagt fram til kynningar.