Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Erindisbréf félagsmálaráðs

Málsnúmer: 1111434

Ferill máls

01

Forsætisnefnd - 81. fundur

Lögð fram tillaga að erindisbréfi velferðarráðs.

Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

02

Félagsmálaráð - 1420. fundur

Forseti bæjarstjórnar kynnti gerð erindisbréfs og væntanlegar breytingar á nefndaskipan sbr. breytingartillögu að bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar sem samþykkt var í bæjarstjórn í september 2016.

03

Forsætisnefnd - 80. fundur

Frá bæjarritara, tillaga að erindisbréfi velferðarráðs lögð fram.

04

Félagsmálaráð - 1419. fundur

Sverrir Óskarsson lagði til að forseti Bæjarstjórnar kynni á næsta fundi félagsmálaráðs væntanlegar breytingar á erindisbréfi ráðsins.

05

Forsætisnefnd - 78. fundur

Lögð fram drög að erindisbréfi fyrir velferðarráð.

Lagt fram.

06

Forsætisnefnd - 77. fundur

Lögð fram drög að erindisbréfi fyrir velferðarráð.

Farið yfir drög og athugasemdir sem borist hafa. Afgreiðslu frestað.

07

Forsætisnefnd - 76. fundur

Lögð fram drög að erindisbréfi fyrir velferðarráð.

Bæjarritara falið að samræma kaflaheiti og uppsetningu erindisbréfa ásamt því að kalla eftir ábendingum viðkomandi sviðsstjóra.

08

Forsætisnefnd - 73. fundur

Lögð fram drög að erindisbréfi fyrir velferðarráð.

Lagt fram.

09

Bæjarráð - 2624. fundur

Erindisbréf félagsmálaráðs, lagt fram til seinni umræðu á fundi bæjarstjórnar 10/1 og vísað til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu.

Bæjarráð samþykkir erindisbréfið með þremur samhljóða atkvæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks sátu hjá.

10

Bæjarstjórn - 1050. fundur

Lagt fram að nýju erindisbréf félagsmálaráðs, sem frestað var á fundi bæjarstjórnar þann 22/11 sl.

Umræða um erindisbréf allra nefnda fór fram undir þessum lið. Til máls tóku Guðríður Arnardóttir og Ómar Stefánsson, sem lagði til að erindisbréfum yrði vísað til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu. Þá tóku til máls Guðríður Arnardóttir, Ómar Stefánsson og Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri.Til máls tóku Ómar Stefánsson og Ármann Kr. Ólafsson um stjórn fundarins.Bæjarstjórn samþykkti tillögu Ómars Stefánssonar um að vísa erindisbréfum til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu með níu atkvæðum gegn einu. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

11

Bæjarráð - 2620. fundur

Bókun í fundargerð félagsmálaráðs 6/12:$line$Samþykkt með þeirri breytingu að félagsmálaráð úthlutar félagslegu leiguhúsnæði.

Lagt fram.

12

Félagsmálaráð - 1320. fundur

Samþykkt með þeirri breytingu að félagsmálaráð úthlutar félagslegu leiguhúsnæði.

13

Bæjarstjórn - 1046. fundur

Erindisbréf félagsmálaráðs

Afgreiðslu frestað til næsta fundar bæjarstjórnar.