Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Lögheimilisbreytingar íbúa Landspítala í Kópavogi

Málsnúmer: 1111542

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2627. fundur

Frá verkefnastjóra í málefnum fatlaðs fólks, dags. 17/1, tillaga að svari til velferðarráðuneytisins vegna erindis réttindagæslumanna hbsv. um lögheimilisbreytingar íbúa á Landspítalanum í Kópavogi, samþykkt á fundi félagsmálaráðs 17/1 sl.

Bæjarráð samþykkir tillögu að svari.

02

Félagsmálaráð - 1322. fundur

Félagsmálaráð samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög að svörum til réttindagæslumanna. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnastjóri sátu fundinn undir þessum lið.

03

Félagsmálaráð - 1321. fundur

Núverandi búsetuúræði íbúa á deildum 18 og 20 telst ekki fullnægjandi að mati hagsmunasamtaka. Félagsmálaráð deilir ekki þeirri skoðun. En ráðið er tilbúið, nú sem fyrr, að taka við þjónustu við íbúana á Kópavogstúni og ítrekar jafnframt kröfu sína að ríkið leggi til húsnæði sem sátt er um áður en af yfirfærslunni verður. Félagsmálastjóra er falið að koma með tillögu að svari til ráðuneytisins. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnastjóri sátu fundinn undir þessum lið.