Bæjarráð - 2627. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Guðríður Eldey Arnardóttir - formaður
- Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Gunnar Ingi Birgisson - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Una María Óskarsdóttir - vara áheyrnarfulltrúi
- Guðrún Pálsdóttir - bæjarstjóri
- Páll Magnússon - bæjarritari
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
Bæjarstjórn vísar afgreiðslu málsins til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs með sex atkvæðum, en fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.
Bæjarráð óskar eftir umsögn menntasviðs á kostnaði við fjögurra tíma yfirvinnu leikskólakennara við gerð námskrár.
Bæjarstjórn samþykkti að vísa erindinu til bæjarráðs til úrvinnslu.
Tillaga að breyttu vinnufyrirkomulagi bæjarstjórnar Kópavogs.
Þar sem flutningsmaður tillögunnar var veðurtepptur frestar bæjarráð afgreiðslu til næsta fundar.
Frá bæjarlögmanni, dags. 17/1, umsögn um kröfu miskabóta vegna lóðaúthlutunar, þar sem lagt er til að kröfunni verði hafnað.
Bæjarráð hafnar kröfunni.
Frá bæjarlögmanni, dags. 23/1, lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 5. janúar 2012, þar sem hann óskar eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar Gull riddarans ehf., kt. 671211-0650, um leyfi til að reka veitingastaðinn Gull riddarann að Engihjalla 8, Kópavogi, en umsóknin fellur undir flokk III, sbr. 4. gr. laga nr. 85/2007.
Frá forstöðumanni UT deildar, dags. 25/1, minnisblað um tillögu- og umræðuvef bæjarins ásamt kostnaðaráætlun, sem óskað var eftir í bæjarráði 12/1 sl.
Bæjarráð felur forstöðumanni UT deildar Kópavogsbæjar að taka saman þarfir Kópavogsbæjar til umræðu- og samráðsvefs íbúa og að óska eftir tilboðum í áskrift af lausn sem uppfyllir þarfir Kópavogsbæjar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>
Frá umhverfisfulltrúa, dags. 24/1, bókun umhverfis- og samgöngunefndar varðandi styrkbeiðni gönguhópsins Ferlis:$line$Umhverfis- og samgöngunefnd bendir á að nefndin hafi engar fjárveitingar til styrkveitinga en leggur til við bæjarráð að umræddur styrkur verði veittur.
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðnina.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 25/1, umsögn, sem óskað var eftir í bæjarráði 19/1, um lagningu ljósleiðara í Kópavogi. Lagt er til í umsögninni að gert verði samkomulag við GR um áframhaldandi lagningu á ljósleiðaraneti GR til að auka þjónustu við íbúa.
Bæjarráð samþykkir tillögu að afgreiðslu.
Frá verkefnastjóra í málefnum fatlaðs fólks, dags. 17/1, beiðni um leyfi til að auglýsa eftir yfirþroskaþjálfa í hæfingarstöðina við Fannborg 6, samþykkt á fundi félagsmálaráðs 17/1 sl.
Bæjarráð veitir umbeðna heimild.
10
Ósk um að íbúar á deild 18 Landspítalanum í Kópavogi verði fluttir formlega undir Félagsþjónustu Kópavogsbæjar
Frá verkefnastjóra í málefnum fatlaðs fólks, dags. 17/1, tillaga að svari til aðstandenda íbúa á Landspítalanum í Kópavogi, samþykkt á fundi félagsmálaráðs 17/1 sl.
Bæjarráð samþykkir tillögu að svari.
Frá verkefnastjóra í málefnum fatlaðs fólks, dags. 17/1, tillaga að svari til velferðarráðuneytisins vegna erindis réttindagæslumanna hbsv. um lögheimilisbreytingar íbúa á Landspítalanum í Kópavogi, samþykkt á fundi félagsmálaráðs 17/1 sl.
Bæjarráð samþykkir tillögu að svari.
Frá yfirmanni þjónustudeildar fatlaðra, dags. 23/1, tillögur að breytingum á reglum um ferðaþjónustu fatlaðra, sem frestað var á fundi félagsmálaráðs 17/1 sl.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingum á reglum um ferðaþjónustu fatlaðra.
Frá yfirmanni ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 24/1, tillaga að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð, samþykktar á fundi félagsmálaráðs 17/1, ásamt upplýsingum sem óskað var eftir á fundi bæjarráðs 19/1 þar sem málinu var frestað.
Bæjarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.
Frá verkefnastjóra í málefnum fatlaðs fólks, dags. 23/1, óskað heimildar til að auglýsa eftir starfsmanni í 100% starf í hæfingarstöðinni við Fannborg .
Bæjarráð veitir umbeðna heimild.
15
Beiðni um leyfi til að auglýsa eftir starfsmanni á heimili fyrir fatlað fólk við Marbakkabraut 14.
Frá verkefnastjóra í málefnum fatlaðs fólks, dags. 23/1, óskað heimildar til að auglýsa eftir starfsmanni í 40% starf á heimili fyrir fatlað fólk við Marbakkabraut.
Bæjarráð veitir umbeðna heimild.
Frá stjórn skíðasvæða hbsv., dags. 20/1, erindi varðandi rekstur skíðasvæðisins í Skálafelli, sbr. meðfylgjandi erindi skíðadeildar KR, dags. 3/1.
Lagt fram.
Frá Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, dags. 23/1, þakkir færðar fyrir ómetanlegan stuðning við starfsemina á árinu 2011.
Lagt fram.
Frá Veg Verk Vegmerking, ódags., fyrirspurn um hvort bjóða eigi út yfirborðsmerkingar gatna í Kópavogi 2012.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til afgreiðslu.
19
Norræna ráðherranefndin. Styrkir fyrir starfsmenn ríkis- og sveitarfélaga til að kynna sér stjórnsýslu á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum
Frá sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 24/1, leiðbeiningar varðandi umsóknir um fyrirhugaðar styrkveitingar til starfsmanna ríkis og sveitarfélaga til að kynna sér stjórnsýslu í baltnesku ríkjunum.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til úrvinnslu.
Frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, Félagi leikskólakennara, mennta- og menningarmálaráðuneyti og Heimili og skóla - landssamtökum foreldra, dags. 23/1, tilkynning um dagskrá dags leikskólans, sem haldinn verður 6. febrúar nk.
Lagt fram. Bæjarráð óskar eftir því að erindið verði sent bæjarfulltrúum.
320. fundur
Lagt fram til kynningar.
321. fundur
Lagt fram til kynningar.Bæjarráð tekur undir bókun fulltrúa Kópavogsbæjar í stjórninni.