Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Deild 18 og 20 Lsp Kópavogstúni. Erindi frá velferðarráðuneyti.

Málsnúmer: 1112164

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2785. fundur

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 10. ágúst, lagt fram bréf vegna yfirfærslu málefna fatlaðs fólks til sveitarfélaga í tilefni af bókun velferðarráðuneytisins að því er varðar íbúa á vistunardeildum 18 og 20 í Kópavogi.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til umsagnar.

02

Félagsmálaráð - 1361. fundur

Lagt fram. Guðlaug Ósk Gísladóttir og Ásta Þórarinsdóttir ráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.

03

Bæjarráð - 2709. fundur

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, afrit af bréfi til velferðarráðuneytisins, dags. 11. nóvember, varðandi vistundardeildir 18 og 20 við Landspítalann í Kópavogi.

Lagt fram.

04

Bæjarráð - 2703. fundur

Félagsmálaráð gerir alvarlegar athugasemdir við tilurð og efni samningsins og mótmælir þeim vinnubrögðum sem ráðuneytið viðhafði. Félagsmálaráð vísar málinu til bæjarráðs til nánari umfjöllunar.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að rita heilbrigðisráðherra bréf þar sem óskað verði upplýsinga um hvað líður vinnu við að íbúar á deildum 18 og 20 flytjist í framtíðarhúsnæði sbr. reglugerð um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum, sem fram kemur í bókun ráðuneytisins frá 25. september sl.

05

Félagsmálaráð - 1358. fundur

Félagsmálaráð gerir alvarlegar athugasemdir við tilurð og efni samningsins og mótmælir þeim vinnubrögðum sem ráðuneytið viðhafði. Félagsmálaráð vísar málinu til bæjarráðs til nánari umfjöllunar. Guðlaug Ósk Gísladóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

06

Bæjarráð - 2700. fundur

Bæjarráð felur bæjarstjóra að rita ráðherra bréf vegna málsins.

07

Félagsmálaráð - 1357. fundur

Félagsmálaráð óskar eftir upplýsingum um samningaumleitanir ríkisins. Guðlaug Ósk Gísladóttir deildarstjóri þjónustudeildar fatlaðs fólks sat fundinn undir þessum lið.

08

Félagsmálaráð - 1346. fundur

Félagsmálaráð vísar máli til bæjarstjóra. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sat fundinn undir þessum lið.

09

Bæjarráð - 2671. fundur

Frá velferðarráðuneytinu, dags. 17. janúar, höfnun beiðni Kópavogs um heimild til að kaupa húsnæði deilda LSH í Kópavogi, en nýjar tillögur að samkomulagi boðaðar á næstunni.

Lagt fram.

10

Bæjarráð - 2627. fundur

Frá verkefnastjóra í málefnum fatlaðs fólks, dags. 17/1, tillaga að svari til aðstandenda íbúa á Landspítalanum í Kópavogi, samþykkt á fundi félagsmálaráðs 17/1 sl.

Bæjarráð samþykkir tillögu að svari.

11

Félagsmálaráð - 1322. fundur

Félagsmálaráð samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög að svörum til aðstandenda íbúa. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnastjóri sátu fundinn undir þessum lið.

12

Félagsmálaráð - 1321. fundur

Félagsmálastjóra falið að koma með tillögu að svari til aðstandenda. Guðlaug Ósk Gísladóttir yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra og Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnastjóri sátu fundinn undir þessum lið.

13

Bæjarráð - 2621. fundur

Frá aðstandendum íbúa á deild 18 Landspítalanum í Kópavogi, dags. 7/12, þar sem óskað er eftir að skjólstæðingar þeirra verði sem fyrst fluttir formlega undir félagsþjónustu Kópavogs.

Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálaráðs til úrvinnslu.