Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Catco Vatn ehf. óskar eftir starfsleyfi til vatnsátöppunar

Málsnúmer: 1112231

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2624. fundur

Frá bæjarritara og sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 4/1, umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði þann 22/12 um erindi Catco Vatns ehf. og frestað á fundi bæjarráðs þann 5/1.

Bæjarráð samþykkir drög að samkomulagi um vatnslögn fyrir átöppunarverksmiðju í Ögurhvarfi með fjórum samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Ég tel að bæjarráð hafi gert stór mistök með því að leyfa þessa einkavatnsveitu í Kópavogi.</EM><EM>Ómar Stefánsson"</EM>Fulltrúar Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Næstbestaflokksins lögðu fram eftirfarandi bókun:<EM>"Hér er ekki um ræða vatnsveitu heldur einungis átöppun. Vatnsveita Kópavogs er með einkaleyfi fyrir rekstur vatnsveitu og hefur samkomulagið engin áhrif á það.</EM><EM>Guðríður Arnardóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Hjálmar Hjálmarsson, Gunnar Ingi Birgisson"</EM>Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Mistökin er engu að síður augljós.</EM><EM>Ómar Stefánsson"</EM>Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Framsóknarflokkurinn hefur alltaf verið á móti framförum.</EM><EM>Gunnar Ingi Birgisson"</EM>Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Samanber óperuhús í Kópavogi.</EM><EM>Ómar Stefánsson"</EM><EM></EM>Sviðsstjóri og skrifstofustjóri umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum lið.

02

Bæjarráð - 2623. fundur

Frá bæjarritara og sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 4/1, umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði þann 22/12 um erindi Catco Vatns ehf.

Kl. 8:28 mætti Ármann Kr. Ólafsson til fundarins. Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar. Sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.

03

Bæjarráð - 2622. fundur

Frá Catco Vatni, tölvupóstur dags. 15/12, óskað eftir starfsleyfi til átöppunar á lindarvatni á flöskur undir vörumerkinu Iceland Spring.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara og sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.