Bæjarráð - 2623. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Guðríður Eldey Arnardóttir - formaður
- Hjálmar Hjálmarsson - aðalfulltrúi
- Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Gunnar Ingi Birgisson - aðalfulltrúi
- Ómar Stefánsson - áheyrnarfulltrúi
- Rannveig H Ásgeirsdóttir - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Guðrún Pálsdóttir - bæjarstjóri
- Páll Magnússon - bæjarritari
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
Frá bæjarritara, dags. 3/1, umsögn um styrkbeiðni Krabbameinsfélags Reykjavíkur, þar sem lagt er til að styrkur verði veittur að upphæð 50.000,-.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að upphæð 50.000,- kr. til fræðslustarfs Krabbameinsfélagsins.
Frá bæjarritara og sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 4/1, umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði þann 22/12 um erindi Catco Vatns ehf.
Kl. 8:28 mætti Ármann Kr. Ólafsson til fundarins. Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar. Sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Frá deildarstjóra íþróttadeildar, drög að samkomulagi við Actic um rekstur Nautilus í Sundlaug Kópavogs.
Bæjarráð samþykkir drög að samkomulagi við Actic.Deildarstjóri íþróttadeildar sat fundinn undir þessum lið.
Frá deildarstjóra íþróttadeildar, tillaga að gjaldskrá sundlauganna fyrir árið 2012.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá.Deildarstjóri íþróttadeildar sat fundinn undir þessum lið.
Frá sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 3/1, greinargerð um tilboð í úttekt á starfsstöðinni Dimmuhvarfi, mál sem frestað var í bæjarráði 22/12.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Capacent á grundvelli tilboðanna. Sviðsstjóri velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.
Frá deildarstjóra barnaverndar, dags. 3/1, óskað heimildar til að auglýsa eftir félagsráðgjafa í fullt starf í barnavernd, tímabundið vegna afleysingar.
Bæjarráð veitir umbeðna heimild. Sviðsstjóri velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.
Frá Jóni Ármanni Guðjónssyni, skiptastjóra þrotabús fasteignafélagsins Bergeyjar ehf., drög að samkomulagi um uppgjör vegna fasteignanna Dalbrekku 2, 4 og 6.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns og fjármála- og hagsýslustjóra til umsagnar.
Frá Samleik, samtökum foreldra leikskólabarna í Kópavogi, óskað eftir 300.000,- kr. styrk til starfsemi samtakanna.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs til umsagnar.
Frá SSH, dags. 21/12, tillögur verkefnahóps 4 varðandi málefni innflytjenda.
Bæjarráð vísar tillögunum til jafnréttis- og mannréttindanefndar, skólanefndar, leikskólanefndar og félagsmálaráðs til umsagnar.
Gunnar I. Birgisson vék af fundi.
Skýrsla vinnuhóps 3, stoðþjónusta og rekstrarsamvinna, sem lagt var fram á fundi félagsmálaráðs 15/11 sl.
Bæjarráð lítur jákvæðum augum á frekara samstarf sveitarfélaganna hvað varðar innkaup og útboð sem og stoðdeildir eins og mannauðsdeild og upplýsingamál. En það er skoðun okkar að heimahöfn hvers þjónustuliðar geti verið í hvaða sveitarfélagi sem er.Fjármála- og hagsýslustjóri sat fundinn undir þessum lið.
Skýrsla vinnuhóps 11, íþróttamannvirki, íþróttastyrkir, sundlaugar, sem lagt var fram á fundi íþróttaráðs 16/11 sl.
Bæjarráð þakkar fyrir vinnu hópsins. Sviðsstjóri menntasviðs og deildarstjóri íþróttadeildar sátu fundinn undir þessum lið.
Skýrsla vinnuhóps 15, menntamál og sérfræðiþekking, sem lagt var fram á fundi skólanefndar 14/11 sl.
Bæjarráð lítur jákvæðum augum á frekara samstarfs sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu varðandi símenntun og skólaþróun. Bæjarráð felur sviðsstjóra menntasviðs að vinna frekar að útfærsu á öðrum tillögum með hópnum og leggja fyrir framtíðarhópinn fyrir 15. apríl 2012. Sviðsstjóri menntasviðs sat fundinn undir þessum lið.
Fundur 14/12
Lagt fram til kynningar.
790. fundur
Lagt fram til kynningar.
791. fundur
Lagt fram til kynningar.
792. fundur
Lagt fram til kynningar.
319. fundur
Lagt fram til kynningar.
Frá bæjarstjóra, kauptilboð frá óstofnuðu einkahlutafélagi, í land á Glaðheimasvæði, dags. 30.12.2011.
Bæjarráð telur kauptilboðið of lágt.
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Hver er staða mála við framkvæmdir Norðurturns við Smáralind?Ómar Stefánsson"
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:
<EM>"Undirritaður telur að hundahald eigi ekki við á hinum fjölmennu hátíðarhöldum sem fram fara á Rútstúni þann 17. júní. Við undirbúning þeirra verði því horft til þess að banna hunda þar þann dag.</EM><EM>Ómar Stefánsson"</EM><EM></EM> Bæjarráð tekur undir bókun Ómars Stefánssonar.