Til baka í fundargerðir
Dalbrekka 2, 4 og 6. Samkomulag um afsal og uppgjör
Málsnúmer: 1201034
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2626. fundur
Frá bæjarlögmanni og fjármála- og hagsýslustjóra, dags. 17/1, umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði 5/1, þar sem lagt er til að gengið verði frá samkomulagi við skiptastjóra fasteignafélagsins Bergeyjar um afsal og uppgjör á Dalbrekku 2, 4 og 6.
Bæjarráð samþykkir tillögu um að gengið verði frá samkomulagi við skiptastjóra um afsal og uppgjör á Dalbrekku 2, 4 og 6.Fjármála- og hagsýslustjóri og bæjarlögmaður sátu fundinn undir þessum lið.
02
Bæjarráð - 2623. fundur
Frá Jóni Ármanni Guðjónssyni, skiptastjóra þrotabús fasteignafélagsins Bergeyjar ehf., drög að samkomulagi um uppgjör vegna fasteignanna Dalbrekku 2, 4 og 6.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns og fjármála- og hagsýslustjóra til umsagnar.