Fyrirspurn frá Ómari Stefánssyni, staða framkvæmda við norðurturn Smáralindar.
Málsnúmer: 1201043
Ferill máls
01
Framkvæmdaráð - 44. fundur
Málefnum Norðurturns er vísað til byggingafulltrúa til áframhaldandi aðgerða. Þá er byggingafulltrúa jafnframt falið að grípa til aðgerða vegna Hlíðarsmára 4, Breiðahvarfs nr. 1, 3 og 5, Ásaþings nr. 1, 3, 5, 7, 9 og 11. Þá er óskað eftir lista frá byggingafulltrúa um stöðu framkvæmda á úthluðum lóðum.
02
Framkvæmdaráð - 43. fundur
Framkvæmdaráð felur sviðsstjóra að ræða við forsvarsmenn "Norðurturnsins" um byggingaráform og gefa framkvæmdaráði upplýsingar á næsta fundi.
03
Bæjarráð - 2624. fundur
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs, dags. 10/1, svar við fyrirspurn um stöðu framkvæmda við Norðurturn Smáralindar, sem óskað var eftir í bæjarráði þann 5/1 sl.
Lagt fram.
04
Bæjarráð - 2623. fundur
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Hver er staða mála við framkvæmdir Norðurturns við Smáralind?Ómar Stefánsson"