Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hundahald við hátíðarhöld á 17. júní. Bókun frá Ómari Stefánssyni.

Málsnúmer: 1201044

Ferill máls

01

Forvarna- og frístundanefnd - 9. fundur

Bókun frá bæjarráð 5.1.2012 um að skoðað verði bann við hundum á hátíðarhöldunum.

Forvarna- og frístundanefnd tekur undir bókun bæjarráðs og mælist til að auglýst verði bann við hundum á hátíðarsvæðinu.

02

Bæjarráð - 2623. fundur

Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:

<EM>"Undirritaður telur að hundahald eigi ekki við á hinum fjölmennu hátíðarhöldum sem fram fara á Rútstúni þann 17. júní. Við undirbúning þeirra verði því horft til þess að banna hunda þar þann dag.</EM><EM>Ómar Stefánsson"</EM><EM></EM> Bæjarráð tekur undir bókun Ómars Stefánssonar.