Svar við fyrirspurn um framlög vegna leikskólabarna í öðrum sveitarfélögum
Málsnúmer: 1201087
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2667. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 18. desember, svar við fyrirspurn í bæjarráði 13. desember sl. varðandi framlög vegna barna í leikskólum í rekstri annarra sveitarfélaga.
Lagt fram.
02
Bæjarstjórn - 1068. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 12. desember, tillaga að nýrri gjaldskrá vegna framlaga með börnum í einkareknum leikskólum. Bæjarráð vísaði tillögu að nýrri gjaldskrá til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að nýrri gjaldskrá framlaga vegna barna í einkareknum leikskólum. Samþykkt með sex atkvæðum. Fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.
03
Bæjarráð - 2666. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 12. desember, tillaga að nýrri gjaldskrá vegna framlaga með börnum í einkareknum leikskólum.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:<EM>Hversu mörgum börnum greiðir Kópavogur með sem eru í leikskólum í rekstri annarra sveitarfélaga.</EM>
04
Bæjarráð - 2648. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 4. júlí, varðandi framlög Kópavogsbæjar vegna barna í einkaleikskólum.$line$Lagt er til að erindinu verði vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2013.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til gerðar fjárhagsáætlunar 2013.
05
Bæjarráð - 2626. fundur
Frá leikskólanum Undralandi, dags. 10/1, óskað eftir endurskoðun á greiðslum til foreldra með tilliti til hækkunar leikskólagjalda.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs til umsagnar.