Bæjarráð - 2667. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Rannveig H Ásgeirsdóttir - formaður
- Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Ómar Stefánsson - aðalfulltrúi
- Guðríður Eldey Arnardóttir - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Hjálmar Hjálmarsson - áheyrnarfulltrúi
- Páll Magnússon - bæjarritari
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
10. fundur$line$Fundargerðinni var vísað til fullnaðarafgreiðslu úr bæjarstjórn þann 18. desember.
Bæjarráð frestar afgreiðslu fundargerðarinnar.
Atvinnu- og þróunarráð samþykkir framlögð drög samþykkta Markaðsstofu Kópavogs ses. og leggur til að bæjarstjóra verði falið að efna til stofnfundar við fyrstu hentugleika.
Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins.
20. fundur
Lagt fram.
21. fundur
Lagt fram.
1343. fundur
Lagt fram.
Félagsmálaráð vísaði erindinu til bæjarráðs til afgreiðslu.
Bæjarráð frestar afgreiðslunni.Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Undirrituð óskar eftir því að fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga mæti á næsta fund bæjarráðs.</EM><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM>
1220. fundur
Lagt fram.Skipulagsstjóri sat fundinn við afgreiðslu á fundargerð skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd hafnaði að taka málið upp að nýju varðandi byggingu bílskúrs, og vísar afgreiðslu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Skipulagsnefnd hafnar að taka málið upp að nýju og vísar því til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Skipulagsnefnd hafnar erindinu á grundvelli innsendra athugasemda frá íbúum að Álfhólsvegi 91 og 93. Skipulagsnefnd vísaði erindinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
802. fundur
Lagt fram.
328. fundur
Lagt fram.
Lagt fram 9 mánaða uppgjör ásamt greinargerð, sbr. lið 4 í fundargerð stjórnar skíðasvæðanna 17/12.
Lagt fram.
309. fundur
Lagt fram.
Drög að starfsreglum stjórnar Sorpu bs., samþykktar á stjórnarfundi 14. desember, sbr. lið 2 í fundargerð.
Lagt fram.
28. fundur
Lagt fram.
Frá bæjarlögmanni, dags. 18. desember, tillaga um kaup á Lækjarbotnalandi 54.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 14. desember, umsögn um útboð á árinu 2011, sem óskað var eftir í bæjarráði þann 6. desember sl.
Lagt fram.
19
Markavegur 1. Athugasemdir við efndir Kópavogsbæjar á skuldbindingum vegna lóðarinnar. Beiðni um gögn og upplýsingar
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs, dags. 17. desember, lagt fram svarbréf vegna erindis um Markaveg 1.
Lagt fram.
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs, dags. 18. desember, upplýsingar sem óskað var eftir í bæjarráði 13. desember sl. varðandi skil á lóðinni Urðarhvarfi 10.
Lagt fram. Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra til úrvinnslu.
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 19. desember, umsögn um tillögu um leigu á vatns- og kaffivélum, sem frestað var í bæjarráði 13. desember sl.
Bæjarráð vísar málinu til umhverfissviðs til úrvinnslu.
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 18. desember, tillaga um að hækka frístundastyrk vegna íþróttaiðkunar barna úr 12.000 kr. í 13.500 kr. næsta haust.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 18. desember, svar við fyrirspurn í bæjarráði 13. desember sl. varðandi framlög vegna barna í leikskólum í rekstri annarra sveitarfélaga.
Lagt fram.