Tillaga ráðgjafa að breytingum á reglum Kópavogsbæjar um fjárhagsaðstoð.
Málsnúmer: 1201114
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2628. fundur
Frá yfirmanni ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 24/1, lögð fram að nýju tillaga að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð, samþykktar á fundi félagsmálaráðs 17/1, ásamt upplýsingum sem óskað var eftir á fundi bæjarráðs 19/1 þar sem málinu var frestað, lagt fram að nýju í bæjarráði 26/1 og frestað.$line$
Bæjarráð staðfestir breytingarnar. Sviðsstjóri velferðarsviðs og yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra sátu fundinn undir þessum lið.
02
Bæjarráð - 2627. fundur
Frá yfirmanni ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 24/1, tillaga að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð, samþykktar á fundi félagsmálaráðs 17/1, ásamt upplýsingum sem óskað var eftir á fundi bæjarráðs 19/1 þar sem málinu var frestað.
Bæjarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.
03
Bæjarráð - 2626. fundur
Tillaga að reglum sem samþykktar voru í félagsmálaráði þann 17. janúar.
Bæjarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar og sviðsstjóra velferðarsviðs falið að afla gagna um samanburð við önnur sveitarfélög. Sviðsstjóri velferðarsviðs og yfirmaður ráðgjafa- og íbúðadeildar sátu fundinn undir þessum lið.
04
Félagsmálaráð - 1322. fundur
Félagsmálaráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögur starfsmanna að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð. Fulltrúar sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins. Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa- og íbúðadeildar og Hanna María Jónsdóttir ráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.