Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Íslandsmótið í skák 2012 og stofnun taflfélags í Kópavogi í sambandi við það.

Málsnúmer: 1202572

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 12. fundur

Á fundi 15/3 sl. ítrekaði bæjarráð fyrirspurn frá fyrri fundi varðandi möguleika á stofnun taflfélags í Kópavogi og afstöðu íþróttaráðs til þess. Deildarstjóri íþróttadeildar hefur lagt fram skýringar á afgreiðslu ráðsins á erindi Skáksambands Íslands frá síðasta fundi.

Íþróttaráð hvetur áhugasama skákunnendur úr Kópavogi til að endurvekja Taflfélag Kópavogs, sem taki að sér skákina í bæjarfélaginu á öllum stigum skákíþróttarinnar.Íþróttaráð óskar jafnframt Álfhólsskóla, nýkrýndum íslandsmeisturnum barnaskólasveita í skák til hamingju með titilinn.

02

Bæjarráð - 2636. fundur

Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 26/3, svar við fyrirspurn varðandi möguleika á stofnun taflfélags, en málið verður tekið upp að nýju á næsta fundi íþróttaráðs sem verður fljótlega eftir páska.

Lagt fram.

03

Bæjarstjórn - 1055. fundur

Ármann Kr. Ólafsson og Ólafur Þór Gunnarsson lögðu fram eftirfarandi tillögu á fundi bæjarráðs 15/3:$line$"Undirritaðir leggja til að kr. 200.000,- verði veitt í styrk til Skáksambandsins vegna mótsins. $line$Ólafur Þór Gunnarsson, Ármann Kr. Ólafsson"$line$Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkir tillöguna með 10 atkvæðum. Ómar Stefánsson vék af fundi undir þessum lið.

04

Bæjarráð - 2634. fundur

Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 14/3, umsögn um erindi Skáksambands Íslands, sem óskað var eftir í bæjarráði 27/2 sl. Mælt er með að Skáksambandið fái stúku Kópavogsvallar til afnota fyrir mótið.

Ármann Kr. Ólafsson og Ólafur Þór Gunnarsson lögðu fram eftirfarandi tillögu:<EM>"Undirritaðir leggja til að kr. 200.000,- verði veitt í styrk til Skáksambandsins vegna mótsins. </EM><EM>Ólafur Þór Gunnarsson, Ármann Kr. Ólafsson"</EM>Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

05

Íþróttaráð - 11. fundur

Lagt fram erindi frá Skáksambandi Íslands, dags. 27. febrúar sl., þar sem óskað er eftir styrk að upphæð 200.000,- kr og að Kópavogur leggi fram húsnæði og tryggi veitingar á meðan á fyrirhuguðu Íslandsmóti stendur dagana 13.- 23. apríl nk. $line$Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs og íþróttaráðs þann 1. mars sl.$line$

Íþróttaráð tekur jákvætt í erindið um að hýsa Íslandsmótið í skák 2012 og er deildarstjóra íþróttadeildar falin nánari útfærsla og samskipti við mótshaldara. Íþróttaráð getur ekki orðið við frekari óskum sambandsins.

06

Bæjarráð - 2632. fundur

Frá Skáksambandi Íslands, dags. 27/2, óskað eftir styrk að upphæð 200.000 kr. og að Kópavogur leggi fram húsnæði og tryggi veitingar á meðan á fyrirhuguðu Íslandsmóti stendur dagana 13. - 23. apríl nk.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs og íþróttaráðs til umsagnar. Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi tillögu:<EM>"Ég legg til að sá hluti erindisins sem snýr að stofnun skákfélags verði vísað til úrvinnslu íþróttaráðs.</EM><EM>Ólafur Þór Gunnarsson"</EM> Bæjarráð samþykkir tillögu Ólafs Þórs Gunnarssonar.