Álmakór 7 og 9. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1203154
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1061. fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar sbr. lið 12 í fundargerð 21. júní.
Hlé var gert á fundi kl. 17:22. Fundi var fram haldið kl. 17:23.Bæjarstjórn staðfestir einróma afgreiðslu bæjarráðs og samþykkir erindið.
02
Bæjarráð - 2646. fundur
Skipulagsnefnd samþykkir erindið og vísar afgreiðslu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.
03
Skipulagsnefnd - 1211. fundur
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Ríkharðs Oddssonar, byggingatæknifræðings f.h. lóðarhafa dags. 26. janúar 2012 þar sem óskað er eftir að breyta deiliskipulagi á lóðunum nr. 7 og 9 við Álmakór. Í breytingunni felst að á lóðinni verði byggð parhús á einni hæð í stað einbýlishúss á tveimur hæðum, byggingarreitir stækka, nýtingarhlutfall sem og hámarks byggingarmagn breytist. Uppdrættir í mkv. 1:200 dags. 26. janúar 2012. $line$Á fundi skipulagsnefndar 21. mars 2012 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Álmakórs 1, 2. 3. 4, 5, 6, 8, 10, 11, 13 og 17. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
Samþykkt.Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
04
Skipulagsnefnd - 1207. fundur
Lögð fram tillaga Ríkharðs Oddssonar, byggingatæknifræðings f.h. lóðarhafa dags. 26. janúar 2012 þar sem óskað er eftir að breyta deiliskipulagi á lóðunum nr. 7 og 9 við Álmakór. Í breytingunni felst að á lóðinu verði byggð parhús á einni hæð í stað einbýlishúss á tveimur hæðum, byggingarreitir stækka, nýtingarhlutfall sem og hámarks byggingarmagn breytist. Uppdrættir í mkv. 1:200 dags. 26. janúar 2012.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Álmakórs 1, 2. 3. 4, 5, 6, 8, 10, 11, 13 og 17.