Flugbraut fyrir módel flug við Bláfjallaveg
Málsnúmer: 1203162
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 20. fundur
Á fundi skipulagsnefndar 21. mars 2012 var óskað eftir umsögn nefndarinnar vegna flugbrautar fyrir módel flug við Bláfjallaveg.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við flugbraut fyrir módel flug á þessu svæði að því gefnu að framkvæmdaraðili skili inn ýtarlegri lýsingu á framkvæmd verksins s.s. lagfæringar á vegi, brautum og sáningu þar sem komið verði í veg fyrir óþarfa rask. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingar græns framboðs telja mikilvægt að leyfi sé ekki veitt nema Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis telji slíkt ekki ógna vatnsvernd á svæðinu eða raska því. Fulltrúar meirihlutans benda á að skipulagsnefnd hafi óskað eftir umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.
02
Skipulagsnefnd - 1207. fundur
Lagt fram erindi Einar Páls Einarssonar Hjallahlíð 19c f.h. flugmódeldeildar Þyts. Í erindinu er óska eftir leyfi til að koma fyrir rýrri flugbraut sem er 10 metrar á breidd og 100 metrar á lengd fyrir módelflug. Fyrirhuguð flugbraut liggur þvert á núverandi flugbraut sem staðsett er vestan Bláfjallavegar sbr. meðfylgjandi loftmynd. Engar byggingar eru áformaðar við flugbrautina.
Frestað.Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn Flugmálastjórnar, HHK, Svifflugfélags Íslands og umhverfis- og samgöngunefndar.