Vinnandi vegur. Samantekt
Málsnúmer: 1203205
Ferill máls
01
Félagsmálaráð - 1332. fundur
Lagt fram til kynningar. Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa og íbúðadeildar og Anna María Valdimarsdóttir sitja fundinn undir þessum lið.
02
Bæjarráð - 2636. fundur
Frá verkefnastjóra velferðarsviðs, dags. 23/3, ítarlegri upplýsingar um verkefnið Vinnandi vegur, sem óskað var eftir í bæjarráði 22/3.
Lagt fram.Bæjarráð þakkar fyrir upplýsingarnar og áréttar mikilvægi verkefnisins sem felst í aukinni virkni einstaklinga en ítrekar að við frekari útfærslu verði gætt að því að kostnaður verði innan heimilda fjárhagsáætlunar.Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"<SPAN style="FONT-FAMILY: " black? Calibri?,?sans-serif?; COLOR:><FONT size=3>Undirrituð fagnar þessu mikilvæga framlagi ríkisstjórnarinnar og þátttöku Kópavogs í þessu verkefni.</FONT></SPAN></EM> <P style="MARGIN: 0cm 0cm 10pt" class=MsoNormal><SPAN style="FONT-FAMILY: " black? Calibri?,?sans-serif?; COLOR:><FONT size=3><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM></FONT></SPAN></P>
03
Bæjarráð - 2635. fundur
Frá verkefnastjóra á velferðarsviði, dags. 21/3, greinargerð um átaksverkefnið Vinnandi vegur, sbr. lið 1 í fundargerð félagsmálaráðs 20/3.
Bæjarráð óskar eftir því að sviðsstjóri velferðarsviðs afli útreikninga og tölulegra upplýsinga frá öðrum sveitarfélögum. Bæjarráð samþykkir tillögu um að Kópavogsbær verði þátttakandi í verkefninu Vinnandi vegur með fyrirvara um nánari útfærslu. Þá er ekki tekin afstaða til ráðninga vegna verkefnisins á þessu stigi.
04
Félagsmálaráð - 1326. fundur
Félagsmálaráð hvetur til þátttöku bæjarfélagsins í átakinu Vinnandi vegur. Í því sambandi verði hafist handa við að búa til störf innan sviða bæjarfélagsins og haft samstarf við Vinnumálastofnun um miðlun í störf. Gera þarf ráð fyrir tímabundinni ráðningu í verkefnið til utanumhalds. Ragnar Snorri Magnússon yfirmaður ráðgjafa og íbúðadeildar og Unnur Ósk Pálsdóttir ráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.