Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vatnsendahvarf, Tóna- og Turnahvarf, breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1203211

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1219. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar í norðarverðu Vatnsendahvarfi, nánar tiltekið við Tóna- og Turnahvarf.

Frestað.Guðmundur Örn Jónsson bókar: Betur færi að allt óbyggt svæð á toppi Vatnsendahvarfs yrði skipulagt í heild sinni frekar en að skipulag miðist einungis við það svæði þar sem þegar hafa verið lagðir vegir.

02

Skipulagsnefnd - 1217. fundur

Lagðar fram hugmyndir skipulags- og byggingadeildar að deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Tóna- og Turnahvarf.Kynningargögn dags. 16. október 2012.

Lagt fram og kynnt.

03

Skipulagsnefnd - 1207. fundur

Lögð fram drög að breyttu skipulagi við Tóna- og Turnahvarf. Í breytingunni felst að iðnaðar- og verslunarsvæði verði íbúðarsvæði. Uppdrættir í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum.

Kynnt. Skipulagsnefnd samþykkir að fela Skipulags- og byggingardeild að hefja undirbúning á breytingu á skipulagi svæðisins sbr. ofangreint.