Tenging hjóla- og göngustíga við Garðabæ.
Málsnúmer: 1203393
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2641. fundur
Frá bæjarstjóra, bókanir frá fundum umhverfis- og samgöngunefndar 2/4, framkvæmdanefndar 20/4, forvarna- og frístundanefndar 26/4, íþróttaráðs 26/4 og skólanefndar 7/5, sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum þann 29/3 sl. varðandi tillögu bæjarstjóra um að viðræður fari fram við Garðabæ um tengingu göngu- og hjólreiðastíga.
Lagt fram.
02
Skólanefnd - 42. fundur
Bæjarráð hefur þegar samþykkt tillöguna fyrir sitt leyti og vísar erindinu til umræðu, m.a. í skólanefnd.
<SPAN style="FONT-FAMILY: " AR-SA? mso-bidi-language: EN-US; mso-fareast-language: Roman?; New ?Times mso-fareast-font-family: IS; mso-ansi-language: 11.5pt; FONT-SIZE: Roman?,?serif?; Times><STRONG>Skólanefnd fagnar tillögunni og hvetur til framkvæmda.</STRONG></SPAN>
03
Íþróttaráð - 12. fundur
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 29/3 sl. tillögu bæjarstjóra um að viðræður fari fram við Garðabæ um tengingu göngu- og hjólreiðastíga og vísaði erindinu til umræðu m.a. íþróttaráðs.$line$ $line$
Íþróttaráð leggur áherslu á að umræddri tengingu milli sveitarfélaganna verði komið á sem allra fyrst.
04
Forvarna- og frístundanefnd - 9. fundur
Tillaga frá bæjarráði 29.mars 2012 um að viðræður fari fram við Garðabæ um tengingu göngu- og hjólreiðastíga. Tillagan samþykkt og erindinu vísað til umræðu m.a forvarna- og frístsundanefnd.
Forvarna- og frístundanefnd fagnar framlagðri tillögu um tengingu hjóla- og göngustíga austan við Reykjanesbrautina sem tengir saman Lindir og Garðabæ.
05
Framkvæmdaráð - 29. fundur
Á fundi bæjarráðs 29. mars 2012 var lögð fram tillaga frá bæjarstjóra um að viðræður fari fram við Garðabæ um tengingu göngu- og hjólreiðastíga. Bæjarráð samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti og vísaði erindinu til umræðu í umhverfis- og samgöngunefnd, framkvæmdaráði, skólanefnd, forvarna- og fríststundanefnd og íþróttaráði.
Samþykkt.
06
Umhverfis- og samgöngunefnd - 18. fundur
Á fundi bæjarráðs 29. mars 2012 var lögð fram tillaga frá bæjarstjóra um að viðræður fari fram við Garðabæ um tengingu göngu- og hjólreiðastíga.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu um tengingu hjóla- og göngustígs austan við Reykjanesbrautina sem tengir saman Lindir og Garðabæ.
07
Bæjarráð - 2636. fundur
Frá bæjarstjóra, dags. 28/3, tillaga um að viðræður fari fram við Garðabæ um tengingu göngu- og hjólreiðastíga.
Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar erindinu til umræðu í umhverfis- og samgöngunefnd, framkvæmdaráði, skólanefnd, forvarna- og frístundanefnd og íþróttaráði.