Umhverfis- og samgöngunefnd - 18. fundur
í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
- Helgi Jóhannesson - aðalmaður
- Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
- Margrét Björnsdóttir - aðalfulltrúi
- Tryggvi Magnús Þórðarson - áheyrnarfulltrúi
- Eiríkur Ólafsson
- Jón Ingi Guðmundsson
Ritari
- Hólmfríður Þorsteinsdóttir
Dagskrá fundar
Á fundi framkvæmdaráðs 21. mars 2012 var lögð fram tillaga garðyrkjustjóra að verkefnum ársins 2012, hún samþykkt og vísað til umhverfis- og samgöngunefndar.
Garðyrkjustjóri kynnti tillöguna og umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti hana.
Lögð fram drög að framkvæmdum ársins 2012.
Garðyrkjustjóri kynnti tillöguna og umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti drögin.
Lögð fram drög að umferðaröryggisáætlun Kópavogs.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti drögin.
Lögð fram tillaga að hjólaleið meðfram Hafnarfjarðarveginum.
Tillagan kynnt og unnið áfram að málinu.
Á fundi bæjarráðs 29. mars 2012 var lögð fram tillaga frá bæjarstjóra um að viðræður fari fram við Garðabæ um tengingu göngu- og hjólreiðastíga.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu um tengingu hjóla- og göngustígs austan við Reykjanesbrautina sem tengir saman Lindir og Garðabæ.
Lögð fram drög að Staðardagskrá 21 fyrir Kópavogsbæ.
Frestað.
Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 5. mars 2012 var lagt fram á ný mál um hreinsun og umgengni á Kársnesi.$line$Nefndin fól umhverfissviði að vinna að aðgerðaráætlun um hreinsun á Kársnesi. $line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar er lögð fram tillaga að aðgerðaráætlun.
Lagt fram og kynnt.
Lagt fram bréf dags. 8. mars 2012 til byggingarfulltrúa þar sem óskað er eftir leyfi til uppsetningar á vegvísi við friðlýsta svæðið í Skerjafirði í Kópavogi.
Kynnt.
Dagur umhverfisins er haldinn árlega 25. apríl og tileinkaður Sveini Pálssyni, fyrsta íslenska náttúrufræðingnum.
<P>Kynnt og samþykkt að taka þátt í verkefninu. Umhverfissviði falið að vinna áfram í málinu.</P>