Engjaþing 1, 3 og 5. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1204242
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1063. fundur
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 3 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og bæjarráðs einróma.
02
Bæjarráð - 2654. fundur
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu ásamt umsögn skipulags- og byggingadeildar. Vísað til bæjarstjórnar og bæjarráðs til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 3 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:"Teldi eðlilegt að málið yrði afgreitt í bæjarráði þar sem allir fulltrúar voru því fylgjandi í skipulagsnefnd og hraða með því afgreiðslu málsins." Bókun Ómars Stefánssonar : "Ég minni á fyrri bókanir varðandi skipulagsmál og afgreiðslu þeirra."
03
Skipulagsnefnd - 1216. fundur
Lögð fram að nýju tillaga Árna Friðrikssonar dags. 20.4.2012 um breytingu á deiliskipulagi á lóðununum 1-5 við Engjaþing. Lagt er til að fella út fjórbýlishúsið á lóð nr. 5; á lóðunum 1-3 er gerð tillaga að tveimur fjölbýlishúsum með 15 íbúðum á lóð 1 og 12 íbúðum á lóð 3. Uppdrættir í mkv. 1:1000 dags. 19.4.2012. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2012 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Kynningu lauk 4. september 2012. Athugasemd barst frá frá Valbirni Höskuldssyni, Frostaþingi 2, dags. 8. ágúst 2012.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt framkomnum athugasemdum og umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 18. september 2012.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu ásamt ofangreindri umsögn. Vísað til bæjarstjórnar og bæjarráðs til staðfestingar.
04
Bæjarstjórn - 1061. fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipualgsnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar sbr. lið 19 í fundargerð 21. júní.
Bæjarstjórn staðfestir einróma afgreiðslu bæjarráðs og samþykkir að auglýsa fram lagða tillögu.
05
Bæjarráð - 2646. fundur
Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa framlagða tillögu og vísar afgreiðslu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.
06
Skipulagsnefnd - 1211. fundur
Lögð fram tillaga Árna Friðrikssonar dags. 20.4.2012 um breytingu á deiliskipulagi á lóðununum 1-5 við Engjaþing. Lagt er til að fella út fjórbýlishúsið á lóð nr. 5; á lóðunum 1-3 er gerð tillaga að tveimur fjölbýlishúsum með 15 íbúðum á lóð 1 og 12 íbúðum á lóð 3. Uppdrættir í mkv. 1:1000 dags. 19.4.2012.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2012 að auglýsa framlagða tillögu.Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
07
Skipulagsnefnd - 1208. fundur
Lögð fram tillaga ASK arkitekta f.h. lóðarhafa Engjaþings 5 að breyttu deiliskipulagi við Engjaþing 1, 3 og 5. Í breytingunni fellst m.a. að fyrirhugað fjórbýlishús að Engjaþingi 5 er fellt út. Þá er miðað við að á lóðunum nr. 1 og 3 rísi fjölbýlis hús; á nr. 1 alls 15 íbúðir og í nr. 3 alls 12 íbúðir eða samtals 27 íbúðir í stað 28 eins og gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir. Fjöldi hæða breytist ekki. Aðkom að lóðunum verður ein í stað tveggja á móts við Frostaþing. Fyrirkomulag bílastæða breytist. Uppdrætti í mkv. 1:1000 og 1:500 dags. 19. apríl 2012 ásamt greinargerð dags. 20. apríl 2012.
Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að vinna áfram að málinu.Afgreiðslu frestað.