Bæjarráð - 2654. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Rannveig H Ásgeirsdóttir - formaður
- Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Ómar Stefánsson - aðalfulltrúi
- Guðríður Eldey Arnardóttir - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Hjálmar Hjálmarsson - áheyrnarfulltrúi
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
57. fundur
Bæjarráð staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa.
11. fundur
Lagt fram.
1216. fundur
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu ásamt ofangreindri umsögn að því gefnu að aðkoma sé tryggð og frárennslismál séu í lagi. Vísað til bæjarstjórnar og bæjarráðs til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 2 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu ásamt umsögn skipulags- og byggingadeildar. Vísað til bæjarstjórnar og bæjarráðs til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 3 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:"Teldi eðlilegt að málið yrði afgreitt í bæjarráði þar sem allir fulltrúar voru því fylgjandi í skipulagsnefnd og hraða með því afgreiðslu málsins." Bókun Ómars Stefánssonar : "Ég minni á fyrri bókanir varðandi skipulagsmál og afgreiðslu þeirra."
Lagt fram að nýju erindi Skipulagsstofnunar dags. 3. ágúst 2012 og skýrslu um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðra framkvæmda við Þríhnúkagíg - aðgengi, aðkomu og þjónustubyggingu, ásamt minnisblaði skipulags- og byggingardeildar dags. 18. september 2012 varðandi skýrsluna. Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 4 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Lóðarhafar Kópavogsbrautar 96 óska eftir frekari rökstuðningi frá skipulagsdeild vegna umsagnar dags. 19. júlí 2012. Lagt fram að nýju ásamt ítarlegri rökstuðningi dags. 18. september 2012. Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 7 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:"Teldi eðlilegt að málið yrði afgreitt í bæjarráði þar sem allir fulltrúar voru því fylgjandi í skipulagsnefnd og hraða með því afgreiðslu málsins."
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og umsögn skipulags- og byggingardeildar, dags. 7. september. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 12 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem umrædd breyting hefur að mati nefndarinnar ekki grenndaráhrif.$line$Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 14 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:"Teldi eðlilegt að málið yrði afgreitt í bæjarráði þar sem allir fulltrúar voru því fylgjandi í skipulagsnefnd og hraða með því afgreiðslu málsins."
Með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er að mat skipulagsnefndar að umrædd breyting hafi ekki grenndaráhrif og samþykkir því erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, sbr. lið 15 í fundargerð frá 18. september og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:"Teldi eðlilegt að málið yrði afgreitt í bæjarráði þar sem allir fulltrúar voru því fylgjandi í skipulagsnefnd og hraða með því afgreiðslu málsins."
799. fundur
Lagt fram.
Frá bæjarstjóra, svar við fyrirspurn varðandi vinnuhóp um atvinnumál.
Lagt fram.
Frá bæjarritara, mánaðarskýrsla í júní 2012, fyrir starfsemi bæjarins í maí 2012, mánaðarskýrsla í júlí fyrir starfsemi bæjarins í júní 2012 og mánaðarskýrsla í ágúst fyrir starfsemi bæjarins í júlí 2012.
Lagt fram.
Mál sem frestað var í bæjarráði 23. ágúst sl. Atvinnu- og þróunarráð hvetur bæjarráð til að samþykkja tillögur starfshópsins.
Bæjarráð vísar tillögum starfshóps um Kópavogstún, Kópavogsbæinn og Kópavogshælið til afgreiðslu bæjarstjórnar.Bókun Ómars Stefánssonar: "Ég legg áherslu á að nefndin hafi í huga að það var búskapur á jörðinni Kópavogur og það kom fram töluverður áhugi á íbúafundi sem haldinn var 7. júní 2012 að það verði horft til þess í framtíðaruppbyggingu gamla býlisins."Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:"Þessi tillaga var lögð fyrir bæjarstjórn í júní sl. og lýsir það ótrúlegu sleifarlagi bæjarstjóra að það taki þrjá mánuði að koma málinu á rekspöl."Ármann Kr. Ólafsson óskar eftir fundarhléi kl. 9:26Fundi fram haldið kl. 9:46Hjálmar Hjálmarsson óskar eftir fundarhléi kl. 9:46Fundi fram haldið kl. 9:50Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:"Því skal haldið til haga að á vakt Hjálmars Hjálmarssonar þar sem hann var í meirihluta í ríflega 20 mánuði þá gerðist nákvæmlega ekki neitt í þessu máli annað en að leggja til að stofnuð yrði nefnd. Síðan nýr meirihluti tók við hefur nefndin verið stofnuð, hún unnið mikið og gott starf og skilað skýrslu. Sú skýrsla fékk umfjöllun í bæjarstjórn og var vísað til<SPAN> </SPAN>bæjarráðs þar sem hún var tekin til umræðu 23. ágúst sl. eftir að álit atvinnu- og þróunarráðs lá fyrir. Í öllu þessu ferli kemur inn í sumarfrí bæjarstjórnar og starfsfólks bæjarins.<SPAN> </SPAN>Hér er um að ræða verkefni þar sem allir hafa unnið í sátt <SPAN></SPAN>bæði meiri- og minnihluti . Að kalla þessa afgreiðslu bæjarstjóra sleifarlag er með hreinum ólíkindum, ekki síst frá fulltrúa sem t.d. fékk það hlutverk að fara fyrir starfshópum t.d. um leiðarkerfi strætó og fundarsköp bæjarstjórnar en varð ekkert úr verki, þar sem aldrei var kallað til fyrstu funda."Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:"Ég geri athugasemdir við orðbragð bæjarstjóra í minn garð í fundarhléi."Ólafur Þór Gunnarsson óskar eftir fundarhlé kl. 9:52Fundi fram haldið kl. 9:54Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:"Að tala um sleifarlag var niðrandi í þessu samhengi þar sem hratt hefur verið unnið í þessu máli og hraðar heldur en Hjálmar kynntist þegar hann var í meirihluta." Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:"Bókun bæjarstjóra vísa ég alfarið til föðurhúsanna. Ég kýs að svara ekki þessari staðleysu í bæjarráði og óska eftir því að málið verði rætt á næsta fundi bæjarstjórnar."
Frá fjármála- og hagsýslustjóra og deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 18. september, upplýsingar varðandi útboð á tryggingum Kópavogsbæjar og húsnæðisnefndar Kópavogs.
Lagt fram.
Afgreiðsla skipulagsnefndar frá 5. september á breyttu deiliskipulagi fyrir Álmakór 17. $line$Skipulagsnefnd samþykkti erindið og vísaði því til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir samþykkt skipulagsnefndar.
Afgreiðsla skipulagsnefndar frá 5. september á umsókn um byggingarleyfi við Digranesveg 62. $line$Skipulagsnefnd samþykkti erindið og vísaði til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir samþykkt skipulagsnefndar.
Afgreiðsla skipulagsnefndar frá 5. september á umsókn um byggingarleyfi við Digranesveg 64. $line$Skipulagsnefnd samþykkti erindið og vísaði til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir samþykkt skipulagsnefndar.
Afgreiðsla skipulagsnefndar frá 5. september á umsókn um að fá að reisa skjólgirðingu og smáhýsi á lóðarmörkum við opið svæði bæjarins. $line$Skipulagsnefnd samþykkti erindið og vísaði til staðfestingar bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð staðfestir samþykkt skipulagsnefndar.
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 17. september og 19. september, tillögur varðandi reglur og framlög vegna barna hjá dagforeldrum.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Erindi skólastjóra grunnskóla í Kópavogi varðandi skerðingu á kennslukvóta grunnskólanna.
Lagt fram.
22
Kostnaðarupplýsingar vegna þátttöku starfsmanna í ráðstefnu Félags héraðsskjalavarða á Akureyri 27.-28.09.2012
Frá héraðsskjalaverði, dags. 18. september, upplýsingar sem óskað var eftir á fundi bæjarráðs þann 13. september sl.
Lagt fram.
Frá héraðsskjalaverði, dags. 18. september, óskað eftir 3,5 nýjum stöðugildum á Héraðsskjalasafni Kópavogs.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar.
Erindi mennta- og menningarmálaráðuneytisins, dags. 10. september, varðandi eftirfylgni með úttekt á Leikskólanum Álfaheiði sem gerð var haustið 2010.
Bæjarráð vísar málinu til menntasviðs.
Lögð fram drög að heilbrigðisáætlun frá velferðarráðuneytinu, dags. 10. september, þar sem óskað er umsagnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarritara til úrvinnslu.
Frá Sigurbirni Þorbergssyni hrl., dags. 19. september, afrit af bréfi til hestamannafélagsins Kjóavöllum.
Lagt fram.
Tilkynning frá Brunabót, dags. 13. september, varðandi ágóðahlutagreiðslu 2012.
Lagt fram.
Lagt fram erindi frá Svavari Kjarrval Lúthersson, dags. 6. september, varðandi beiðni um gögn til afnota í OpenStreetMap.
Bæjarráð vísar málinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til úrvinnslu.
Lagt fram erindi, dags. 14. september, frá Mörtu Ólafsdóttur, varðandi strætivagnaskýli í efstu byggðum Kópavogs.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:"Í janúar á þessu ári skipaði bæjarráð starfshóp undir forystu fulltrúa Kópavogs í Strætó b.s. Var starfshópnum ætlað að fara yfir öll þau mál sem tengjast almenningssamgöngum í Kópavogi. Eðlilegt væri að umrætt mál yrði tekið þar fyrir. Hins vegar hefur fyrrgreindur starfshópur ekki gert neitt og aldrei komið saman. Þetta sýnir glöggt áhugaleysi Gunnars Inga Birgissonar fulltrúa Kópavogs í Strætó b.s. í þessum málaflokki. Það er ámælisvert að bæjarstjóri skuli ekki hafa fylgt eftir ákvörðunum bæjarráðs hvað þetta varðar og lýsir vel sinnuleysi meirihluta Sjálfstæðis og Framsóknarflokksins."Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:"Þetta var starfshópurinn sem stofnaður var á meðan Hjálmar Hjálmarsson var í meirihluta og undir hans forystu var aldrei kallaður saman fundur. Það er mjög eðlilegt að fela umhverfis- og samgöngunefnd að fjalla um þetta mál og þarf ekki sérstakan starfshóp til. Þá fjallar erindið ekki um slæmar strætósamgöngur heldur biðskýli."Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:"Fyrrverandi bæjarstjóra var falið að framfylgja ákvörðun bæjarráðs. Þar var fulltrúa Kópavogs í Strætó b.s. falið að stýra vinnu starfshópsins. Í febrúar var bæjarstjórinn rekinn og Ármann Kr. Ólafsson ráðinn í hans stað. Þá var Gunnar Ingi Birgisson kjörinn fulltrúi Kópavogs í stjórn Strætó bs. Eðli málsins samkvæmt er það í verkahring nýs bæjarstjóra að fylgja eftir ákvörðun bæjarráðs og nýs fulltrúa í stjórn Strætó bs. að stýra vinnu starfshópsins. Þó svo að undirritaður, fyrrverandi fulltrúi Kópavogs beri ábyrgð á því að umræddur starfshópur var settur á laggirnar getur hann ekki tekið ábyrgð á sleifarlagi Ármanns Kr. Ólafssonar og Gunnars Inga Birgissonar í þessu máli."Bókun Rannveigar Ásgeirsdóttur:"<FONT color=#000000 size=2 face=Tahoma>Að gefnu tilefni vill formaður bæjarráðs minna fundarmenn á að hafa í huga háttvísi í bókunum sínum og gæta að því að niðrandi ummæli sem geta talist beinast að persónum eru fulltrúum í bæjarráði ósæmandi.</FONT>"Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:"Það er formanna nefnda og starfshópa að boða til funda og það eiga bæjarfulltrúar að vita."Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:"Ég vil benda bæjarstjóra á að kynna sér feril málsins en undirritaður var aldrei skipaður í þennan hóp með formlegum hætti."
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs, dags. 19. september, umsögn um afturköllun lóðarumsóknar.
Bæjarráð samþykkir beiðni lóðarhafa í samræmi við umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs.
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs, dags. 19. september, umsögn um lóðarskil á Austurkór 81 og 83.
Bæjarráð samþykkir beiðni lóðarhafa í samræmi við umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs og vísar málinu að öðru leyti til sviðsstjóra umhverfissiviðs.
Frá félagi sumarhúsaeigenda í Lækjarbotnalandi, dags. 27. ágúst, athugasemdir við lóðarleigusamninga í Lækjarbotnalandi.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til sviðsstjóra umhverfissviðs.
Frá bæjarritara, dags. 19. september, tillaga að viðtalstímum bæjarfulltrúa, á tímabilinu frá 27. september til 6. desember 2012.
Bókun Guðríðar Arnardóttur:"<FONT size=3 face=Calibri>Undirrituð er með viðtalstíma allt árið skv. samkomulagi og er kynnt á heimasíðu bæjarins."</FONT>
Rannveigar Ásgeirsdóttur óskar eftir því að sett verði á dagskrá næsta fundar bæjarstjórnar liðurinn kosningar.
Bæjarráð samþykkir að vísa fyrirspurninni til úrvinnslu bæjarritara.