Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Þorrasalir 29, einbýli á einni hæð.

Málsnúmer: 1205195

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1071. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði tillögunni til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir einróma afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir framlagða tillögu.

02

Bæjarráð - 2673. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar.

03

Skipulagsnefnd - 1222. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 15.1.2013 var lagt fram að nýju erindi ES teiknistofu f.h. lóðarhafa að Þorrasölum 29. Á fundi skipulagsnefndar 16.5.2012 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Þorrasala 27, 31, Þrúðsala 10, 12 og 14. Þá lögð fram kynningargögn með áritun ofangreindra lóðarhafa, þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við fyrirhugaða framkvæmd. Í kjölfar mótmæla íbúa í hverfinu var haldinn samráðsfundur þann 25. október 2012 á skipulags- og byggingardeild. Á fundi skipulagsnefndar 20. nóvember 2012 var lögð fram breytt tillaga þar sem húsið er 180 m2 að stærð og stallast í hæð. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna að nýju fyrir lóðarhöfum Þorrasala 2-10 og 21-37 og Þrúðsala 10, 12 og 14. Kynningu lauk 15. janúar 2013. Athugasemd barst frá Gísla Þrastarsyni, Þorrasölum 2; Ingu Jónu Ingimundardóttur, Þorrasölum 4; Lárusi Yngvasyni, Þorrasölum 6; Ævari Valgeirssyni, Þorrasölum 10; Jóni Hákon Hjaltalín, Þorrasölum 23; Ragnheiði Þorkelsdóttur, Þorrasölum 35; Júlíusi Sigurjónssyni, Þorrasölum 37 dags. 14. janúar 2013. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 4. febrúar 2013.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1221. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi ES teiknistofu f.h. lóðarhafa að Þorrasölum 29. Á fundi skipulagsnefndar 16.5.2012 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Þorrasala 27, 31, Þrúðsala 10, 12 og 14. Þá lögð fram kynningargögn með áritun ofangreindra lóðarhafa, þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við fyrirhugaða framkvæmd. Í kjölfar mótmæla íbúa í hverfinu var haldinn samráðsfundur þann 25. október 2012 á skipulags- og byggingardeild. Á fundi skipulagsnefndar 20. nóvember 2012 var lögð fram breytt tillaga þar sem húsið er 180m2 að stærð og stallast í hæð. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Þorrasala 2-10 og 21-37 og Þrúðsala 10, 12 og 14. Kynningu lauk 15. janúar 2013. Athugasemd barst frá Gísla Þrastarsyni, Þorrasölum 2; Ingu Jónu Ingimundardóttur, Þorrasölum 4; Lárusi Yngvasyni, Þorrasölum 6; Ævari Valgeirssyni, Þorrasölum 10; Jóni Hákon Hjaltalín, Þorrasölum 23; Ragnheiði Þorkelsdóttur, Þorrasölum 35; Júlíusi Sigurjónssyni, Þorrasölum 37 dags. 14. janúar 2013.

Frestað. Skipulagsnefnd felur skipulags- og byggingardeild að taka sama umsögn um framkomna athugasemd.

05

Skipulagsnefnd - 1218. fundur

Lagt fram að nýju erindi ES teiknistofu f.h. lóðarhafa að Þorrasölum 29. Á fundi skipulagsnefndar 16.5.2012 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Þorrasala 27, 31, Þrúðsala 10, 12 og 14. Þá lögð fram kynningargögn með áritun ofangreindra lóðarhafa, þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við fyrirhugaða framkvæmd. Í kjölfar mótmæla íbúa í hverfinu var haldinn var samráðsfundur þann 25. október 2012 á skipulags- og byggingardeild.$line$$line$Lögð fram ný tillaga þar sem húsið er 180m2 að stærð og stallast í hæð.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Þorrasala 2-37.

06

Bæjarstjórn - 1061. fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar sbr. lið 14 í fundargerð 21. júní.

Bæjarstjórn staðfestir einróma afgreiðslu bæjarráðs og samþykkir erindið.

07

Bæjarráð - 2646. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir erindið og vísar afgreiðslu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.

08

Skipulagsnefnd - 1211. fundur

Lögð er fram að lokinni kynningu tillaga ES teiknistofu f.h. lóðarhafa að Þorrasölum 29. Á fundi skipulagsnefndar 16.5.2012 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Þorrasala 27, 31, Þrúðsala 10, 12 og 14. Þá lögð fram kynningargögn með áritun ofangreindra lóðarhafa, þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við fyrirhugaða framkvæmd.

Samþykkt.Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

09

Skipulagsnefnd - 1209. fundur

Lögð fram tillaga ES teiknistofu f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi við Þorrasali 29 sbr. uppdrátt í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 16. apríl 2012. Í tillögunni fellst að gert er ráð fyrir einbýlishúsi á einni hæð í stað þess að á lóðinni rísi einbýli á tveimur hæðum.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Þorrasala 27, 31, Þrúðsala 10, 12 og 14.