Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Málefni Tónlistarhúss Kópavogs

Málsnúmer: 1205551

Ferill máls

01

Lista- og menningarráð - 89. fundur

Lista- og menningarráð þakkar tónlistarráði Salarins fyrir sín störf. Skipunartíma þess lýkur 31. maí 2018. Ráðið ályktar að tilraunaverkefnið verði metið í upphafi næsta kjörtímabils og leggur til að skipan slíks ráðs verði formgert betur í samstarfi við forstöðumann menningarmála.

02

Lista- og menningarráð - 68. fundur

Forstöðumaður Salarins, Aino Freyja Jarvela, fer almennt yfir starfsemi tónlistarshússins. Einnig hvernig til hefur tekist með Tíbrár tónleikaröðina. Lagt til að verkefninu verði framhaldið.

Lista- og menningarráð samþykkir að sjóðurinn styrki áframhaldandi tónleikaröð og gefur heimild til þess að auglýst verði eftir styrkjum úr sjóðnum vegna Tíbrár, fyrir veturinn 2017 og 2018. Forstöðumaður Salarins leggi svo til nánari tillögur um tónleikasjóð á næsta fundi ráðsins.

03

Lista- og menningarráð - 62. fundur

Tillaga forstöðumanns Salarins og tónleikaráðs að úthlutun úr tónleikasjóði sem fjármagnaður verði úr lista- og menningarsjóði skv. fyrri ákvörðun ráðsins.

Ráðið lýsir yfir ánægju með komandi dagskrá í Salnum og þakkar tónleikaráði Salarins fyrir sína aðkomu.

04

Lista- og menningarráð - 62. fundur

Forstöðumaður Listhúss hefur með vitund og vilja formanns ráðsins rætt við Þórunni Björnsdóttur um að taka upp að nýju verkefnið Tónlist fyrir alla eða list fyrir alla, heimsókn grunnskólabarna í Salinn. Rætt um að verkefnið hefjist í október.

Lista- og menningarráð fagnar því að tekin verði fyrstu skrefin í þessa átt í samstarfi við Þórunni Björnsdóttur og mælist til þess að verkefnið verði þróað í átt að list fyrir alla.

05

Lista- og menningarráð - 60. fundur

Skipan tónlistarráðs Salarins. Lögð fram skipan tónlistarráðs Salarins ásamt greinargerð forstöðumanns Salarins fyrir valinu. Ráðið er skipað til eins árs og er forstöðumanni Salarins til listrænnar ráðgjafar.Í tónlistarráðinu eru auk Aino Freyju Jarvela, Bjarni Frímann Bjarnason, Erpur Eyvindarson og Guðrún Birgisdóttir. Fjöldi funda og nánara fyrirkomulag er ákveðið í samráði við forstöðumann Listhúss Kópavogsbæjar.

Lista- og menningarráð fagnar þessu skrefi enda sé með því verið að styrkja faglegt starf Salarins.

06

Lista- og menningarráð - 55. fundur

Framhald umræðu frá 20. október sl. um hugmyndir forstöðumanns Salarins um að efla sérstöðu tónlistarhússins. Tillögur forstöðumannsins voru lagðar fram á sínum tíma í framhaldi af samþykkt menningarstefnu Kópavogsbæjar.

Ráðið samþykkir tillögu forstöðumanns Salarins um að tónleikasjóður Salarins verði fjármagnaður með framlagi úr lista- og menningarsjóði og að auglýst verði eftir umsóknum fljótlega. Forstöðumaður Salarins ásamt fagráði sem skipað verður, forstöðumanninum til ráðgjafar, mun meta og afgreiða umsóknirnar.

07

Lista- og menningarráð - 50. fundur

Forstöðumaður Salarins, Aino Freyja Jarvela, kynnir hugmyndir til að efla sérstöðu Salarins, tónlistarhúss Kópavogs, sem settar eru fram í kjölfar samþykktar menningarstefnu bæjarins.

Ráðið tekur vel í hugmyndir um stofnun fagráðs um málefni Salarins og að sérstaða Salarins verði styrkt.

08

Lista- og menningarráð - 32. fundur

Forstöðumaður Salarins, Aino Freyja Jarvela, fór yfir starfsemina.

Ráðið þakkar Aino fyrir yfirferðina.

09

Lista- og menningarráð - 22. fundur

Forstöðumaður Salarins kynnir starfsemina ásamt Helga Jónssyni sem unnið hefur fyrir Salinn varðandi klassíska tónlist.

Ráðið þakkar þeim Aino Freyju og Helga Jónssyni fyrir komuna.

10

Lista- og menningarráð - 13. fundur

Aino Freyju Jarvela og Björn Thoroddsen kynntu hugmyndir að verkefni fyrir Salinn.

Ráðið hyggst gera langtímasamning við Björn Thoroddsen í samvinnu við forstöðumann Salarins, sem ætla í sameiningu að vinna að því að auka orðspor Salarins og efla árvissa tónlistarhátíð í Kópavogi. Starfsmanni ráðsins falið að leita aðstoðar bæjarlögmanns um gerð slíks samnings.

11

Lista- og menningarráð - 4. fundur

Forstöðumaður Salarins, Aino Freyja Jarvela, sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir starfsemi Salarins.