Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 13. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Una Björg Einarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Pétur Krogh Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Helga Margrét Reinhardsdóttir - aðalfulltrúi
  • Arna Schram - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Arna Schram

Hjálmar Hjálmarsson mætir á fund kl. 18:16

Dagskrá fundar

01

Málefni Tónlistarhúss Kópavogs

Aino Freyju Jarvela og Björn Thoroddsen kynntu hugmyndir að verkefni fyrir Salinn.

Ráðið hyggst gera langtímasamning við Björn Thoroddsen í samvinnu við forstöðumann Salarins, sem ætla í sameiningu að vinna að því að auka orðspor Salarins og efla árvissa tónlistarhátíð í Kópavogi. Starfsmanni ráðsins falið að leita aðstoðar bæjarlögmanns um gerð slíks samnings.

02

Styrkúthlutanir fyrir árið 2013.

Tillögur lagðar fram til umræðu.

Ráðið ákveður að styrkja ormadaga 213 um 550 þúsund krónur. Ákvörðun um aðrar umsóknir verður tekin síðar.

03

Kópavogstún, Kópavogsbærinn og Kópavogshælið.

Ráðið þarf að tilnefna varamann í stjórn Kópavogsfélagsins.

Una Björg Einarsdóttir er tilnefnd sem varamaður í stjórn Kópavogsfélagsins.

04

Bókasafn Kópavogs 60 ára

Ráðið hyggst gefa Bókasafni Kópavogs kynningarskjá í afmælisgjöf og hljómflutningstæki.