Endurnýjun á þjónustusamningi vegna félagsliða
Málsnúmer: 1205628
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2679. fundur
Frá deildarstjóra þjónustudeildar aldraðra, dags. 19. mars, óskað eftir einu viðbótarstöðugildi. Félagsmálaráð tekur jákvætt í erindið og vísar málinu til bæjarráðs til afgreiðslu, sbr. lið 3 í fundargerð frá 18. mars.
Bæjarráð frestar afgreiðslu.
02
Félagsmálaráð - 1348. fundur
Félagsmálaráð lýsir yfir áhyggjum sínum af biðlistum eftir dag- og kvöldþjónustu sem rekin er í samstarfi við Heilsugæsluna. Ráðið telur mikilvægt að brugðist verði við ósk um eitt viðbótarstöðugildi og vísar beiðni til bæjarráðs til afgreiðslu. Við gerð næstu fjárhaghagsáætlunar þarf að hafa í huga fjölgun í hópi aldraðra og bregðast við með auknum mannafla í þjónustunni. Svanhildur Þengilsdóttir yfirmaður þjónustudeildar aldraðra sat fundinn undir þessum lið.
03
Bæjarráð - 2651. fundur
Frá deildarstjóra þjónustudeildar aldraðra, dags. 15. ágúst, um þjónustusamning milli Kópavogsbæjar og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Á fundi félagsmálaráðs þann 14. ágúst samþykkti ráðið þjónustusamninginn um stöðugildi félagsliða.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu félagsmálaráðs.
04
Félagsmálaráð - 1334. fundur
Félagsmálaráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu bæjarráðs. Svanhildur Þengilsdóttir yfirmaður þjónustudeildar aldraðra sat fundinn undir þessum lið.
05
Félagsmálaráð - 1330. fundur
Frestað og óskað eftir kostnaðargreiningu. Svanhildur Þengilsdóttir yfirmaður þjónustudeildar aldraðra sat fundinn undir þessum lið.