Bæjarráð - 2679. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Hjálmar Hjálmarsson - áheyrnarfulltrúi
- Pétur Krogh Ólafsson - aðalfulltrúi
- Una María Óskarsdóttir - varafulltrúi
- Páll Magnússon - bæjarritari
- Arnþór Sigurðsson - varafulltrúi
- Hreiðar Oddsson - varafulltrúi
Ritari
- Páll Magnússon
Ármann Kr. Ólafsson setti fund og stýrði í fjarveru formanns og varaformanns bæjarráðs.
Dagskrá fundar
76. fundur
Lagt fram.
24. fundur
Lagt fram.
Greinargerð deildarstjóra barnaverndar, dags. 5. mars, um stöðu barnaverndarmála. Barnaverndarnefnd tekur undir tillögu deildarstjóra barnaverndar og vísar málinu til bæjarráðs til afgreiðslu.
Bæjarráð frestar erindinu.
Tillögur verkefnahóps um sameiginlega bakvakt vegna barnaverndar, dags. 15. mars. Barnavernd lítur jákvætt á tillögurnar og vísar málinu til bæjarráðs til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir tillögu um sameiginlega bakvakt vegna barnaverndar.
25. fundur
Lagt fram.
Kl. 8:28 mætti Hjálmar Hjálmarsson til fundar.
1348. fundur
Lagt fram.
Frá yfirmanni ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 19. mars, tillögur að breytingum á reglum um útleigu á félagslegum leiguíbúðum, samþykktar á fundi félagsmálaráðs frá 18. mars, sbr. lið 2 í fundargerð.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingum á reglum um útleigu á félagslegum leiguíbúðum.
Frá deildarstjóra þjónustudeildar aldraðra, dags. 19. mars, óskað eftir einu viðbótarstöðugildi. Félagsmálaráð tekur jákvætt í erindið og vísar málinu til bæjarráðs til afgreiðslu, sbr. lið 3 í fundargerð frá 18. mars.
Bæjarráð frestar afgreiðslu.
47. fundur
Lagt fram. Sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. mars, var lagður fram samningur dags. 19. mars 2013 um afnot og gerð sjósetningaraðstöðu með viðlegukanti við Vesturvör nr. 38-50. Samningurinn er undirritaður af málsaðilum og bæjarstjóra með fyrirvara um samþykki hafnarstjórnar og bæjarstjórnar.$line$$line$Framkvæmdaráð leggur til að málinu verði vísað til hafnarstjórnar og bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu hafnarstjórnar og bæjarstjórnar.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. mars, lagt fram minnisblað verkefnastjóra umhverfissviðs um opnun tilboða í verkið "Kópavogsbraut 41, Kópavogi íbúðarúrræði fyrir fatlaða." Tilboð voru opnuð 5. mars sl. og bárust 11 tilboð auk eins frávikstilboðs. $line$Lagt er til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Sérverk ehf. á grundvelli tilboðs þeirra og með tilliti til fjárhagsáætlunar. $line$$line$
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. mars, lögð fram tillaga sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 19. mars sl. varðandi lausar kennslustofur við þrjá skóla vegna fjölgunar nemenda. Lagt er til að húsnæðisvandi skólanna verði leystur með eftirfarandi hætti:$line$Hörðuvallaskóli 3 kennslustofur$line$Vatnsendaskóli 2 kennslustofur$line$Salaskóli 2 kennslustofur.$line$$line$Framkvæmdaráð leggur til að 3 lausar stofur verði settar upp við Hörðuvallaskóla, 2 við Salaskóla og 2 við Vatnsendaskóla.$line$
Bæjarráð samþykkir tillögu framkvæmdaráðs.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. mars, lögð fram tilboð í verkið "Yfirborðsmerkingar í Kópavogi 2013-2014", sem opnuð voru 26. mars sl.$line$Sex tilboð bárust.$line$Deildarstjóri framkvæmdadeildar leggur til við framkvæmdaráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda GSG Vegmerking ehf. um verkið.$line$$line$Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda GSG Vegmerking ehf.$line$$line$
Bæjarráð samþykkir tillögu framkvæmdaráðs.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. mars, lögð fram tilboð í verkið "Malbikun og viðgerðir í Kópavogi 2013-2014", sem opnuð voru 12. mars sl. Fjögur tilboð bárust. Deildarstjóri framkvæmdadeildar leggur til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Fagverk verktakar ehf.$line$$line$Framkvæmdaráð leggur til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Fagverk verktaka ehf. $line$
Bæjarráð samþykkir tillögu framkvæmdaráðs.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. mars, deildarstjóri framkvæmdadeildar óskar heimildar til að bjóða út smærri verk í rammasamningi með möguleika á örútboðum. $line$Framkvæmdaráð veitir heimildina.$line$
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs.
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 18. mars sl. varðandi endurnýjun á nýtingarleyfi grunnvatns í Vatnsendakrikum. Á fundinum er lögð fram fundargerð fundar fulltrúa Kópavogsbæjar og Orkuveitu Reykjavíkur ásamt ráðgjöfum, dags. 14. mars sl. Lagt er fram minnisblað Vatnaskila dags. 21. desember sl. og yfirlit Vatnsveitu Kópavogs yfir vatnstöku í Vatnsendakrikum 2008-2013 og áætluð notkun til 2050.$line$Í umsögn sviðsstjóra kemur m.a. fram að miðað við núverandi vatnstökusvæði og þegar horft er til framtíðar telur sviðsstjóri rétt að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu komi sér saman um með hvaða hætti vatnsbólin verði nýtt til framtíðar.$line$
Bæjarráð áréttar að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu komi sér saman um með hvaða hætti vatnsbólin verði nýtt til framtíðar.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. mars, lögð fram drög að endurskoðun gjaldskrár um gatnagerðargjald í Kópavogi "Samþykkt um gatnagerðargjald í Kópavogi." Helsta nýmæli er ákvæði 7. greinar um sérstakar lækkunarheimildir. Bæjarstjórn sé heimilt að lækka um allt að 40% gatnagerðargjalds sem lagt er á nýbyggingar sem koma í stað eldri húsa og afmarkast heimildin við austur og vesturbæ Kópavogs. Einkum af þörf fyrir þéttingu byggðar svo innviðir samfélagsins nýtist betur, t.d. skólar, leikskólar og samgöngukerfið. $line$$line$Framkvæmdaráð leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi drög verði samþykkt. $line$
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. mars, lagður fram samningur, dags. 19. mars 2013 um úthlutun lóðarréttinda við Vesturvör. Samningurinn er undirritaður af málsaðilum og bæjarstjóra með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.$line$$line$Framkvæmdaráð leggur til að málinu verði vísað til hafnarstjórnar og bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$$line$
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu hafnarstjórnar og bæjarstjórnar.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. mars, lagt fram minnisblað vegna opnunar tilboða í "Reykjanesbraut stofnstígur. Suður Mjódd-Lindir." Útboðið er sameiginlegt með Vegagerðinni, umhverfissviði Kópavogsbæjar, umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, Orkuveitu Reykjavíkur og Mílu. Þrettán tilboð bárust og var tilboð Fjarðargrjóts ehf. lægst við opnun tilboðanna.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda.
178. fundur
Lagt fram.
56. fundur
Lagt fram.
5. fundur
Lagt fram.
120. fundur
Lagt fram.
Frá bæjarstjóra, svar við fyrirspurn Péturs Ólafssonar frá 14. mars sl. Lagt fram álit AM Praxis dags. 12. apríl 2006.
Lagt fram.
Frá fjármála- og hagsýslustjóra, dags. 18. mars, umsögn um erindi lóðarhafa Kópavogstúni 10-12, þar sem lagt er til að MótX ehf. verði veitt skilyrt veðleyfi á lóðinni gegn því að úthlutunarverð verði staðgreitt inn á bankareikning Kópavogsbæjar.
Bæjarráð samþykkir erindið.
Frá bæjarlögmanni, dags. 19. mars, umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði 7. febrúar sl. varðandi leikskólann Kjarrið.
Bæjarráð felur bæjarlögmanni að svara bréfritara á grundvelli umsagnarinnar.
27
Digranesvegur, salur/salir MK. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um tækifærisleyfi til árshátíðarhalds
Frá bæjarlögmanni, dags. 19. mars, umsögn um umsókn Menntaskólans í Kópavogi, kt.470576-2199, um tækifærisleyfi til að mega halda árshátíð MK, fimmtudaginn 21. mars 2013, frá kl. 22:00-2:00, í sal/sölum MK, Digranesvegi, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 20. mars, svar við fyrirspurn í bæjarráði þann 7. mars sl. varðandi viðbrögð skóla vegna óveðurs.
Lagt fram. Una María Óskarsdóttir óskaði eftir að færa til bókar þakkir fyrir svörin.
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 20. mars, svar við fyrirspurn í bæjarráði þann 7. mars, varðandi ráðningar við nýjan leikskóla í Austurkór sem fyrirhugað er að opna í janúar 2014.
Lagt fram. Arnþór Sigurðsson óskaði fært til bókar að hann þakkaði skjót og greinargóð svör.
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 20. mars, óskað heimildar til auglýsingar og ráðningar skólastjóra Lindaskóla.
Bæjarráð veitir umbeðna heimild.
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 19. mars. tillaga að breytingu á reglum um frístundastyrki.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingu á reglum um frístundastyrki.
Frá nefndasviði Alþingis, dags. 14. mars, óskað umsagnar um frumvarp til laga um vatnalög og rannsóknir á auðlindum í jörðu (samræming reglna um vatnsréttindi), 634. mál.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfissviðs til umsagnar.
Frá Skipulagsstofnun, dags. 15. mars, tilkynning um samráðsfund Skipulagsstofnunar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélaga, sem haldinn verður 11. og 12. apríl nk. á Hótel Cabin.
Lagt fram.
Frá yfirfasteignamatsnefnd innanríkisráðuneytisins, dags. 19. mars, óskað umsagnar um kæru vegna fasteignamats á eigninni Álaþingi 10.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.
Frá Sorpu bs., dags. 14. mars, lagður fram ársreikningur 2012 sem samþykktur var á stjórnarfundi þann 4. mars sl.
Lagt fram.
Pétur Ólafsson lagði fram eftirfarandi tillögu:
<EM>"Undirritaður leggur til að kannaðir verði <SPAN style="FONT-FAMILY: " AR-SA? mso-bidi-language: IS; mso-fareast-language: mso-ansi-language: minor-latin; mso-fareast-theme-font: Calibri; mso-fareast-font-family: 12pt; FONT-SIZE: Roman?,?serif?; New Times>möguleikar á aðstöðu fyrir notendur á meðan beðið eftir strætó á brúnni við Hamraborg. Hamraborgin á sér langa sögu sem ein helsta samgöngumiðstöð á höfuðborgarsvæðinu og æskilegt væri að þar væri aðstaða fyrir farþega betri.</SPAN></EM><SPAN style="FONT-FAMILY: " AR-SA? mso-bidi-language: IS; mso-fareast-language: mso-ansi-language: minor-latin; mso-fareast-theme-font: Calibri; mso-fareast-font-family: 12pt; FONT-SIZE: Roman?,?serif?; New Times><EM>Pétur Ólafsson"</EM></SPAN>Bæjarráð vísar tillögunni til úrvinnslu umhverfissviðs og hún verði skoðuð m.t.t. fyrirhugaðra umbóta á Hálsatorgi.
Pétur Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:
<SPAN style="FONT-FAMILY: " AR-SA? mso-bidi-language: IS; mso-fareast-language: mso-ansi-language: minor-latin; mso-fareast-theme-font: Calibri; mso-fareast-font-family: 12pt; FONT-SIZE: Roman?,?serif?; New Times><EM>"Í þriggja ára áætlun er upphæð sem eyrnamerkt var stofnun nýs menntaskóla í Kópavogi. Mikilvægt væri ef bæjarstjórn Kópavogs kæmi sér saman um aðgerðaráætlun í málinu. </EM></SPAN><SPAN style="FONT-FAMILY: " AR-SA? mso-bidi-language: IS; mso-fareast-language: mso-ansi-language: minor-latin; mso-fareast-theme-font: Calibri; mso-fareast-font-family: 12pt; FONT-SIZE: Roman?,?serif?; New Times><EM>Pétur Ólafsson"</EM></SPAN>