Langtímaáætlun 2017 - 2018
Málsnúmer: 1206603
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2687. fundur
Frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, dags. 29. apríl, varðandi fjárhagsleg viðmið steitarstjórnarlaga.
Lagt fram.
02
Bæjarstjórn - 1072. fundur
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir langtímaáætlun 2017 - 2018 og lagði til að hún yrði samþykkt.
Bæjarstjórn samþykkir langtímaáætlun 2017 - 2018 með sex atkvæðum. Fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.
03
Bæjarstjórn - 1071. fundur
Frá fjármála- og hagsýslustjóra, dags. 5. febrúar, greinargerð vegna langtímaáætlunar fyrir árin 2017 - 2018. Bæjarráð vísaði langtímaáætlun til bæjarstjórnar.$line$
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir tillögu um langtímaáætlun 2017 - 2018 og lagði til að henni yrði vísað til seinni umræðu. Bæjarstjórn samþykkir með ellefu greiddum atkvæðum að vísa langtímaáætlun til síðari umræðu.
04
Bæjarráð - 2673. fundur
Frá fjármála- og hagsýslustjóra, dags. 5. febrúar, greinargerð vegna langtímaáætlunar fyrir árin 2017 - 2018.
Bæjarráð vísar langtímaáætlun til bæjarstjórnar. Fjármála- og hagsýslustjóri sat fundinn undir þessum lið.
05
Bæjarráð - 2648. fundur
Frá innanríkisráðuneytinu, eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, dags. 26. júní, þar sem óskað er eftir áætlun sveitarstjórnar um hvernig hún hyggst ná viðmið 1. tölul. og 2. tölul. 2 mgr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Svör til nefndarinnar skulu berast eigi síðar en 1. september 2012.
Bæjarráð vísar erindinu til fjármála- og hagsýslustjóra til umsagnar.