Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Álmakór 17 - breytt deiliskipulag

Málsnúmer: 1207122

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1063. fundur

Bæjarráð staðfestir samþykkt skipulagsnefndar.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og bæjarráðs með tíu samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.

02

Bæjarráð - 2654. fundur

Afgreiðsla skipulagsnefndar frá 5. september á breyttu deiliskipulagi fyrir Álmakór 17. $line$Skipulagsnefnd samþykkti erindið og vísaði því til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.

Bæjarráð staðfestir samþykkt skipulagsnefndar.

03

Skipulagsnefnd - 1215. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Krisjáns Leifssonar lóðarhafa, dags. 9. júlí 2012 þar sem óskað er eftir að breyta deiliskipulagi á lóðinni nr. 17 við Álmakór. Í breytingunni felst að á lóðinni verði byggt parhús á einni hæð í stað einbylishúss á tveimur hæðum, byggingarreitir stækka, nýtingarhlutfall sem og hámarks byggingarmagn breytist. Uppdrættir í mkv. 1:1000 og 1:500 dags. 9. júlí 2012. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum að Álmakór 9, 13, 15, 19, 21, Almannakór 9, 11, Arakór 8, 9 og 10. Kynningu lauk 30. ágúst 2012. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.

04

Skipulagsnefnd - 1213. fundur

Á fundi skipualgsnefndar 17. júlí 2012 var lagt fram erindi Krisjáns Leifssonar lóðarhafa dags. 9. júlí 2012 þar sem óskað er eftir að breyta deiliskipulagi á lóðinni nr. 17 við Álmakór. Í breytingunni felst að á lóðinni verði byggt parhús á einni hæð í stað einbylishúss á tveimur hæðum, byggingarreitir stækka, nýtingarhlutfall sem og hámarks byggingarmagn breytist. Uppdrættir í mkv. 1:1000 og 1:500 dags. 9. júlí 2012.

Skipulagsnefnda samþykkir með tilvísan í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum að Álmakór 9, 13, 15, 19, 21, Almannakór 9, 11, Arakór 8, 9 og 10.