Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Beiðni um aðstoð við að útvega aðstöðu fyrir listasal til sýningahalds

Málsnúmer: 1209031

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2655. fundur

Umsögn lista- og menningarráðs sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum þann 6. september:$line$Lista - og menningarráð telur áhugavert að skoða fjölbreyttari nýtingu húsa í eigu bæjarins. Ráðið hyggst taka erindið frekar til umfjöllunar og umræðu í tengslum við endurskoðun menningarstefnu bæjarins sem unnið er að.

Bæjarráð felur bæjarritara að svara bréfritara á grundvelli umsagnar lista- og menningarráðs.

02

Lista- og menningarráð - 8. fundur

Lagt fram erindi myndlistafélags Kópavogs, dags. 4. september þar sem óskað er eftir aðstoð við að útvega aðstöðu fyrir listasal til sýningahalds. Bæjarráð vísaði erindinu til lista- og menningarráðs til umsagnar.

Lista - og menningarráð telur áhugavert að skoða fjölbreyttari nýtingu húsa í eigu bæjarins. Ráðið hyggst taka erindið frekar til umfjöllunar og umræðu í tengslum við endurskoðun menningarstefnu bæjarins sem unnið er að.

03

Bæjarráð - 2652. fundur

Lagt fram erindi myndlistafélags Kópavogs, dags. 4. septmber þar sem óskað er eftir aðstoð við að útvega aðstöðu fyrir listasal til sýningahalds.

Bæjarráð vísar erindinu til lista- og menningarráðs til umsagnar.