Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 8. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Una Björg Einarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sveinn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Helga Margrét Reinhardsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjálmar Hjálmarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Sigrún Skaftadóttir - varafulltrúi
  • Una María Óskarsdóttir

Ritari

  • Arna Schram

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Menningarstefna Kópavogs.

Ítarlegar umræður um menningarstefnu Kópavogsbæjar. Ákveðið að haldinn verði fljótlega stefnumótunarfundur með bæjarbúum.

Almenn mál

02

Heiðurslistamaður Kópavogs.

Áframhaldandi umræða.

Almenn mál

03

Beiðni um aðstoð við að útvega aðstöðu fyrir listasal til sýningahalds

Lagt fram erindi myndlistafélags Kópavogs, dags. 4. september þar sem óskað er eftir aðstoð við að útvega aðstöðu fyrir listasal til sýningahalds. Bæjarráð vísaði erindinu til lista- og menningarráðs til umsagnar.

Lista - og menningarráð telur áhugavert að skoða fjölbreyttari nýtingu húsa í eigu bæjarins. Ráðið hyggst taka erindið frekar til umfjöllunar og umræðu í tengslum við endurskoðun menningarstefnu bæjarins sem unnið er að.

Almenn mál

04

Beiðni um styrk til að fjármagna útgáfu á geisladisk og bók byggt á sögunni Englajól

Ráðið sér sér ekki fært að verða við umsókninni.

Almenn mál

05

Vinabæir Kópavogsbæjar

Lagt fram minnisblað um heimsókn fulltrúa Vestnorræns menningarhúss í Óðinsvéum.

Almenn mál

06

Fyrirspurn frá Hjálmari Hjálmarssyni um útilistaverk

Hjálmar Hjálmarsson spyr um stöðu mála vegna útilistaverks í Hlíðagarði eftir Jóhann Eyfells sem hefur verið í viðgerð frá árinu 2002. Formaður hyggst hafa samband við forstöðumann Gerðarsafns og spyrja um gang mála.