Bílastæði við Dalbrekku
Málsnúmer: 1209378
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2659. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 23. október, umsögn um erindi frá Högum hf. varðandi bílastæði við Dalbrekku, sem óskað var eftir í bæjarráði 27. september sl. og fjallað var um á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 18. október, þar sem eftirfarandi var bókað: $line$"Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að heimiluð verði tímabundin notkun bílastæða við Dalbrekku. Ekki er hægt að verða við beiðni um afnot bílastæðanna til 15 ára. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs."
Bæjarráð staðfestir að ekki er unnt að verða við óskum um samning til 15 ára.
02
Umhverfis- og samgöngunefnd - 26. fundur
Á fundi bæjarráðs 27. september 2012 var til umfjöllunar erindi frá Högum hf. varðandi bílastæði við Dalbrekku og var erindinu vísað til umsagnar sviðsstjóra og umhverfis- og samgöngunefndar. Sviðsstjóri gerði grein fyrir erindinu. Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að ekki verði gerður samningur til 15 ára en heimiluð verði notkun bílastæða við Dalbrekku 6 enda eru bílastæðin til almennra nota. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
03
Bæjarráð - 2655. fundur
Frá Högum hf., dags. 21. september, varðandi bílastæði við fyrirhugaða verslun við Nýbýlaveg 2.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs og umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar.