Til baka í fundargerðir
Ósk um aðgengi að íþróttasal í Kórnum og Snælandsskóla
Málsnúmer: 1210200
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 17. fundur
Lagt fram erindi frá Gerplu, dags. 8. október, með ósk um aðgengi að íþróttasal í Kórnum og íþróttahúsi Snælandsskóla, ásamt ítrekun á fyrri bréfum.$line$Á fundi bæjarráðs 11. þessa mánaðar var erindinu vísað til sviðsstjóra menntasviðs og íþróttaráðs til úrvinnslu.
Greint var frá því að á ofangreindum samstarfsfundum voru Gerplu boðnir tímar í íþróttahúsi Kársnesskóla og íþróttahúsi Lindaskóla sem lausir eru. Ekki er hægt að verða við óskum félagsins um tíma í íþróttahúsunum í Kórnum og Snælandi.
02
Bæjarráð - 2657. fundur
Frá Gerplu, dags. 8. október, ósk um aðgengi að íþróttasal í Kórnum og íþróttahúsi Snælandsskóla, ásamt ítrekun á fyrri bréfum.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs og íþróttaráðs til úrvinnslu.