Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit
Íþróttaráð - 17. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
  • Kristín Sævarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
  • Valdimar F Valdimarsson - starfsmaður nefndar
  • Jón Júlíusson - starfsmaður nefndar
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - sviðsstjóri fræðslusviðs
  • Evert Kristinn Evertsson - aðalfulltrúi
  • Una María Óskarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Eiríkur Ólafsson - varafulltrúi
Ritari
  • Jón Júlíusson
Dagskrá fundar
01
Ársreikningar íþróttafélaga 2011
Tekið til umræðu bréf Íþróttafélagsins Gerplu dagsett, 17. september sl., þar sem svarað er fyrirspurn íþróttaráðs frá 15. fundi ráðsins um rekstrarafkomu félagsins árið 2011 og frestað var á síðasta fundi ráðsins.$line$
Kynnt greinargerð íþróttadeildar varðandi svokallaða "vangreiðslu Kópavogsbæjar á grundvelli núgildandi rekstrarsamnings", er getið er í ofangreindu bréfi félagsins til íþróttaráðs. 
<SPAN style="FONT-FAMILY: " Times Roman?,?serif?; FONT-SIZE: 12pt; mso-fareast-font-family: ?Times New Roman?; mso-fareast-language: IS?>Jafnframt greindu deilarstjóri íþróttadeildar og sviðsstjóri menntasviðs frá samskiptum við Gerplu frá síðasta fundi ráðsins. Haldnir hafa verið tveir fundir 24. sept. og 15. október. <SPAN style="FONT-FAMILY: " Times Roman?,?serif?; FONT-SIZE: 12pt; mso-fareast-font-family: ?Times New Roman?; mso-fareast-language: IS?>Minnispunktar frá þeim fundum liggja fyrir. <SPAN style="FONT-FAMILY: " Times Roman?,?serif?; FONT-SIZE: 12pt; mso-fareast-font-family: ?Times New Roman?; mso-fareast-language: IS?>Skoðaðar hafa verið athugasemdir félagsins og er sú vinna á lokastigi.
<SPAN style="FONT-FAMILY: " Times Roman?,?serif?; FONT-SIZE: 12pt; mso-fareast-font-family: ?Times New Roman?; mso-fareast-language: IS?>Íþróttaráð felur starfsmönnum menntasviðs að svara erindi Gerplu. 
02
Umsókn um aðild að niðurgreiðslu.
Tekið til afgreiðslu erindi Skema frá 6. sept. sl sem lagt var fram á síðasta fundi ráðsins og frestað. Skema óskar eftir því að það verði aðildarfélag að niðurgreiðslukerfi Kópavogsbæjar til tómstundamála.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu að svo komnu máli.
03
Erindi varðandi biðlista í Gerplu
Lagt fram erindi frá Gerplu, dags. 17. september, til bæjaráðs þar sem óskað eftir aukinni aðstöðu í íþróttahúsum bæjarins og að rekstrarsamningur milli Kópavogsbæjar og Gerplu verði endurnýjaður. Erindinu var vísað til úrvinnslu sviðsstjóra menntasviðs og íþróttaráðs á fundi bæjarráðs 11. þessa mánaðar.$line$
<SPAN style="FONT-FAMILY: " Times Roman?,?serif?; FONT-SIZE: 12pt; mso-fareast-font-family: ?Times New Roman?; mso-fareast-language: IS?>Deildarstjóri íþróttadeildar upplýsti að samkvæmt framlögðum iðkenda- og biðslistum Gerplu frá 15. okt. 2012 þá eru 528 börn á aldrinum 0 - 19 ára á biðlista. Þar af eru 310 börn úr Kópavogi þar sem 104 þeirra eru á aldrinum 0-5 ára en 6 ára og eldri 206. Samkvæmt iðkendalista félagsins eru nú 300 iðkendur á aldrinum 6-19 ára heimilisfastir utan Kópavogs.  
<SPAN style="FONT-FAMILY: " Times Roman?,?serif?; FONT-SIZE: 12pt; mso-fareast-font-family: ?Times New Roman?; mso-fareast-language: IS?>Með tilvísun til samstarfsfunda er greint var frá undir fyrsta dagskrárlið fundarins, þá er nú fyrst hægt að snúa sér að hinum raunverulegu samningaviðræðum við félagið um endurnýjun rekstrarsamnings og gerð þjónustusamnings í samræmi við þá samninga sem nú þegar hafa verið gerðir við önnur félög í bænum.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>
04
Ósk um aðgengi að íþróttasal í Kórnum og Snælandsskóla
Lagt fram erindi frá Gerplu, dags. 8. október, með ósk um aðgengi að íþróttasal í Kórnum og íþróttahúsi Snælandsskóla, ásamt ítrekun á fyrri bréfum.$line$Á fundi bæjarráðs 11. þessa mánaðar var erindinu vísað til sviðsstjóra menntasviðs og íþróttaráðs til úrvinnslu.
Greint var frá því að á ofangreindum samstarfsfundum voru Gerplu boðnir tímar í íþróttahúsi Kársnesskóla og íþróttahúsi Lindaskóla sem lausir eru. Ekki er hægt að verða við óskum félagsins um tíma í íþróttahúsunum í Kórnum og Snælandi.
05
Athugasemd við fundargerð 15. fundar íþróttaráðs 15.08.2012
Lagt fram erindi frá Gerplu, dags. 17. september, þar sem óskað eftir að bókun undir lið 1 í fundargerð íþróttaráðs frá 15. ágúst sl. verði endurskoðuð og breytt. Erindið var lagt fram í bæjarráði 11. þessa mánaðar og vísað til úrvinnslu sviðsstjóra menntasviðs og íþróttaráðs.
Íþróttaráð tekur undir athugasemdir félagsins frá 17. sept. þar sem í bókun ráðsins er talað um að "töflurnar taki mið af óskum íþróttafélaganna um skipan þjónustusvæða", hefði átt að standa ....töflurnar taka mið af óskum íþróttafélaga um skipa þjónustusvæða:Vill íþróttaráð hér með leiðrétta þessa bókun.
06
Stefnumótun um íþróttamál í Kópavogi
Fjallað var um drög að skipulagi tveggja stefnumótunarfunda um íþróttamál í Kópavogi. Fyrri fundur verði fimmtudaginn 29. nóvember nk. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu. Jafnframt felur íþróttaráð starfsmönnum að skipuleggja heimsóknir ráðsins til íþróttafélaga í Kópavogi.
07
Fjárhagsáætlun 2013 -íþróttadeild
Deildarstjóri greindi frá stöðu mála varðandi áætlunina.