Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Athugasemd við fundargerð 15. fundar íþróttaráðs 15.08.2012

Málsnúmer: 1210201

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 17. fundur

Lagt fram erindi frá Gerplu, dags. 17. september, þar sem óskað eftir að bókun undir lið 1 í fundargerð íþróttaráðs frá 15. ágúst sl. verði endurskoðuð og breytt. Erindið var lagt fram í bæjarráði 11. þessa mánaðar og vísað til úrvinnslu sviðsstjóra menntasviðs og íþróttaráðs.

Íþróttaráð tekur undir athugasemdir félagsins frá 17. sept. þar sem í bókun ráðsins er talað um að "töflurnar taki mið af óskum íþróttafélaganna um skipan þjónustusvæða", hefði átt að standa ....töflurnar taka mið af óskum íþróttafélaga um skipa þjónustusvæða:Vill íþróttaráð hér með leiðrétta þessa bókun.

02

Bæjarráð - 2657. fundur

Frá Gerplu, dags. 17. september, óskað eftir að bókun undir lið 1 í fundargerð íþróttaráðs frá 15. ágúst sl. verði endurskoðuð og breytt.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs og íþróttaráðs til úrvinnslu.