Erindi varðandi biðlista í Gerplu
Málsnúmer: 1210205
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 17. fundur
Lagt fram erindi frá Gerplu, dags. 17. september, til bæjaráðs þar sem óskað eftir aukinni aðstöðu í íþróttahúsum bæjarins og að rekstrarsamningur milli Kópavogsbæjar og Gerplu verði endurnýjaður. Erindinu var vísað til úrvinnslu sviðsstjóra menntasviðs og íþróttaráðs á fundi bæjarráðs 11. þessa mánaðar.$line$
<SPAN style="FONT-FAMILY: " Times Roman?,?serif?; FONT-SIZE: 12pt; mso-fareast-font-family: ?Times New Roman?; mso-fareast-language: IS?>Deildarstjóri íþróttadeildar upplýsti að samkvæmt framlögðum iðkenda- og biðslistum Gerplu frá 15. okt. 2012 þá eru 528 börn á aldrinum 0 - 19 ára á biðlista. Þar af eru 310 börn úr Kópavogi þar sem 104 þeirra eru á aldrinum 0-5 ára en 6 ára og eldri 206. Samkvæmt iðkendalista félagsins eru nú 300 iðkendur á aldrinum 6-19 ára heimilisfastir utan Kópavogs.  
<SPAN style="FONT-FAMILY: " Times Roman?,?serif?; FONT-SIZE: 12pt; mso-fareast-font-family: ?Times New Roman?; mso-fareast-language: IS?>Með tilvísun til samstarfsfunda er greint var frá undir fyrsta dagskrárlið fundarins, þá er nú fyrst hægt að snúa sér að hinum raunverulegu samningaviðræðum við félagið um endurnýjun rekstrarsamnings og gerð þjónustusamnings í samræmi við þá samninga sem nú þegar hafa verið gerðir við önnur félög í bænum.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>
02
Bæjarráð - 2657. fundur
Frá Gerplu, dags. 17. september, óskað eftir aukinni aðstöðu í íþróttahúsum bæjarins og að rekstrarsamningur milli Kópavogsbæjar og Gerplu verði endurnýjaður.
Guðríður Arnardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Erla Karlsdóttir lögðu fram eftirfarandi bókun:"Gerpla sendi erindi til bæjarráðs 17. september og undirrituð óskar eftir skýringum á því hvers vegna erindið hefur ekki verið lagt fram í bæjarráði fyrr en nú.Guðríður Arnardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Erla Karlsdóttir"Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs og íþróttaráðs til úrvinnslu.